Guðrún Sigríður Sæmundsen
Guðrún Sigríður er fædd 28. mars 1982. Hún er með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum frá Grenoble Graduate School of Business í Frakklandi. Á meðan hún vann að ritgerð sinni til meistaraprófs árið 2009 var hún í starfsnámi hjá EFTA í Brüssel. Síðan hefur hún starfað í fjármála- og ferðamannageiranum, m.a. hjá Bláa Lóninu þar sem hún sá um sölu og markaðssetningu Blue Lagoon húðvara erlendis.
„Á meðan ég var hjá franska sendiráðinu kláraði ég fyrstu bókina mína; Hann kallar á mig. Hana gaf ég sjálf út um jólin 2015 eftir að hafa safnað upp í prentkostnað á karolinafund.com. Bókina byrjaði ég að skrifa haustið 2014 út frá textum sem ég hafði skáldað 2011. Þetta hefur allt sinn aðdraganda og ég hefði ekki getað ímyndað mér þegar ég byrjaði á textunum 2011 að þeir myndu enda sem heil bók fjórum árum síðar. Sú bók fjallaði um dökkar hliðar samfélagsins, fíkn og ofbeldi.“ (Mbl)
„Sjálfri finnst mér gaman að læra og fræðast. Ég elska að lesa og eitt það skemmtilegasta sem ég geri er að skrifa. Það hefur fylgt mér frá blautu barnsbeini. Við systkinin erum alin upp við bækur, það var alltaf lesið fyrir okkur á kvöldin og bækur voru alltaf sýnilegar á heimilinu. Ef ég var í tiltekt og þurfti að velja hvort setja átti bækur ofan í kassa í geymslu eða skrautmuni, þá fór það síðarnefnda. Bækurnar mínar fengu alltaf sitt pláss.“ (Mannlíf)
„Ég hef alltaf verið að skrifa. Sem barn setti ég saman stuttar sögur og hafði mikið ímyndunarafl. Ég samdi ljóð bæði fyrir sjálfa mig og aðra. Ég gaf til dæmis afa mínum og frænku ljóð í afmælisgjöf þegar ég var á áttunda árinu. Á unglingsárunum hélt ég áfram að yrkja ljóð, þau voru gjarnan mjög tilfinningaþrungin, enda viðkvæmur tími og margt í gangi. Mér fannst svo gott að fá útrás fyrir erfiðar tilfinningar í gegnum ljóðin og heillandi að geta sagt mikið í stuttu máli.“ (DV)
„Bækurnar mínar hafa fjallað um mjög dökkar hliðar samfélagsins. Það tekur á að skrifa þær og það getur tekið á að lesa þær. Þegar ég skrifa þá þarf ég að tala við fólk, kynna mér málin, reyna að setja mig inn í aðstæður og ná í þær tilfinningar sem ég ímynda mér að geti blossað upp við ákveðna reynslu, áfall eða annað. Það getur verið mjög erfitt að skrifa en það er mjög gaman. Ég geri það af ástríðu,“ segir hún.“ (Mbl)
Haustið 2018 kom út önnur skáldsaga Guðrúnar Sigríðar, Andstæður. Hún fjallar um harðan heim vændis andspænis lífi hjóna í úthverfi sem hafa tapað neistanum í sambandinu og er byggð á heimildum. Sagan er spennandi, vel skrifuð og trúverðug.
Guðrún Sigríður segir í viðtali að draumurinn sé að skrifa, hún sé núna að lifa drauminn og sé hvergi nærri hætt. „Eftir áramót ætla ég að byrja á næstu bók og það er aldrei að vita nema það verði framhald af Andstæður. Viðbrögð lesenda hafa verið það góð að það verður erfitt að segja skilið við söguna og sögupersónurnar. Ég get alla vega sagt að það er af nógu að taka og flæði hugmynda endalaust, svo fylgist með.“ (Mannlíf)
Heimildir
mbl.is/smartland/stars/2018/11/18/vidskiptafraedingur_skrifar_um_vaendi/
https://www.mannlif.is/frettir/syni-hver-vaendiskonan-raunverulega-er/
Mynd
https://is.ambafrance.org/Nyr-visinda-og-menningarfulltrui-vi%C3%B0-sendira%C3%B0i%C3%B0
Ritaskrá
- 2021 Rósa
- 2018 Andstæður
- 2015 Hann kallar á mig