SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir∙12. nóvember 2026

GUDDA SAGA BOOKS

Guðný Anna Annasdóttir hefur skrifað rúmlega 20 barnabækur og þýtt fáeinar þeirra yfir á dönsku. Bækurnar eru myndskreyttar af syni Guðnýjar Önnu, Páli Jóhanni Sigurjónssyni myndlistarmanni.

Það sem af er ári hefur Guðný Anna sent frá sér bækurnar Músasystur dansa, Steindís og kastalinn, Ljóni æfir karate og Írissa og Issi í frumskóginum auk þýðinga á tveimur bóka sinna yfir á dönsku: Ljóni i Legoland og Ljóni laver ballade hos hønsene.

Í febrúar 2026 stofnaði Guðný Anna bókaforlag í Danmörku. Forlagið ber nafnið „Gudda Saga Books“ og er markmið forlagsins m.a. að þýða íslenskar bækur yfir á dönsku. Á vefsíðu forlagsins má sjá nokkrar af bókum Guðnýjar Önnu, bæði á dönsku og ensku. og sömuleiðis er þar að finna skáldsöguna Eydísi eftir Oddbjörgu Ragnarsdóttur sem kom út á íslensku árið 2015.

Hér má nálgast vefsíðu bókaforlagsins.