Jóna Guðbjörg Torfadóttir∙10. nóvember 2026
HÚSFYLLIR Á BÓKAKVÖLDI

Það var margt um konuna, kvárið og manninn á bókakvöldi Fjöruverðlaunanna og Kvenréttindafélags Íslands í gærkvöldi á Hallveigarstöðum. Fjórar skáldkonur lásu úr nýjum verkum sínum og boðið var upp á kakó og kleinur.
Fram komu:
Auður Ava Ólafsdóttir las úr bókinni Tengdasonur Íslands
Auður Önnu Magnúsdóttir las úr bókinni Mæðrun – sýnisbók
María Elísabet Bragadóttir las úr bókinni Þúsund barna móðir
Steinunn Sigurðardóttir las úr bókinni Veisla þrjú
Umræðum stjórnaði Helga Dögg Björgvinsdóttir, formaður Fjöruverðlaunanna.
Skáld.is mætti á svæðið og tók fáeinar myndir.











