ODDBJÖRG RAGNARSDÓTTIR
Það er ekki á hverjum degi sem íslensk skáld fá bækur sínar þýddar yfir á annað tungumál og gefnar út. Hún hefur nú verið þýdd yfir á dönsku bókin,,Eydís” sem kom út hér heima árið 2015. Nú um helgina var kynning á bókinni í Bogforum í Kaupmannahöfn ásamt þeim bókum sem Oddbjörg hefur gefið út. Þá hefur Oddbjörg þýtt barnabókina ,,Dísa fer í sveitina” yfir á dönsku. Útgefandinn Guðný Anna Annasdóttir hefur stofnað danskt forlag, Gudda Saga Books sem heldur utanum bækurnar hennar.


Eydís fjallar um unga konu á eitístímabilinu og segja má að hún sé að miklu leyti sögulega frétt, því nokkrir atburðir sem nefndir eru í sögunni áttu sér stað í raun og veru árið 1983. Þar er m.a. verið að vísa til tónleika með Grace Jones, mótmæli fyrir utan veðurstofuna vegna slæms veðurs o.fl. Persónur og leikendur eru hins vegar skáldskapur, sem og megnið af söguþræðinum.
Oddbjörg hefur gefið út nokkrar bækur þar á meðal bækurnar ,,Hvunndagsmorð” sakamálasaga sem fjallar um ósköp venjulegt fólk, sem lifir hefðbundnu lífi í hvunndeginum, sem þó hættir að vera venjulegt þegar það lendir í að verða aðilar og jafnvel gerendur glæpa, umlukið lygavef sem það sér ekki út úr. Kona hverfur í Kópavogi og lík af karlmanni finnst í húsbruna í Grafarvogi. Soffía og Hrafnkell stýra rannsókn mála.

Hefndararfur er sjálfstætt framhald Hvunndagsmorða. Þemað er ágirnd, lygar, morð og ofbeldi, að ógleymdri öfundinni. Lík af konu finnst á skólalóð leikskóla í Kópavogi. Líkið reynist vera af eiturlyfjaneytanda sem er blóðmóðir lögreglukonunnar Soffíu og þarf hún í framhaldinu að eltast við skugga úr fortíð sinni.

Oddbjörg hefur auk þess gefið út tvær barnabækur önnur er um ævintýri Dísu þegar hún fer í heimsókn í sveitina.

hin er um barnabarn sem spyr ömmu sína forvitna spurningu um fuglana.

Við óskum Oddbjörgu til hamingju með þennan merka áfanga og allar bækurnar hennar.

