SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Magnea Þuríður Ingvarsdóttir∙19. nóvember 2026

SVÖRT ORKIDEA

Vónbjørt Vang: Svørt orkidé, Ljóðabók, Forlaget Eksil, 2023. Tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2025. Vónbjört er færeysk fædd árið 1974. Bókin var þýdd á íslensku af Móheiði Hlíf Geirlaugsdóttur. Þess má geta að klippimyndirnar í bókinni vann Vang upp úr gömlum bókum um jarðfræði og flóru Færeyja.

Á heimasíðu Norrænt samstarf er bókin kynnt svo:

Svört orkidea er þriðja ljóðabókin hennar Vang og er þema hennar áhyggjur móður sem fylgist með barni sínu verða fullorðið og ótta við hvaða leiðir verða fyrir valinu hjá því. Gæti barnið leiðst inn á rangar brautir.

bls 33

hvar sem við erum stödd,

fellur laufið,

blómin fölna,

hvern dag, sem líður,

breytist lífið í kringum þig.

Allt lifandi deyr stöðugt.

Ennfremur segir:

,,Í verkinu er áhersla lögð á líkamleika ljóðmælandans, á móðurina sem óháða veru sem þarf á líkamlegum styrk að halda í baráttu sinni við kjarkleysi, áhyggjur og angist yfir því að geta ekki hjálpað barninu sínu eða náð til þess. Þannig birtist líka leit að tvíhyggju sem hugsanlega er ekki til, og löngunin til að efla sjálfa sig en geta um leið ekki sleppt takinu af tengslunum milli foreldris og barns.

Gegnumgangandi í verkinu er myndlíkingin um svörtu orkídeuna, um plöntur almennt, um lækningamátt garðvinnu og um gróðurmoldina, sem táknar jafnframt þá undirheima og myrkur sem barnið hverfur inn í. Þessi víxlverkun á milli styrksins í hinu líkamlega og góðra áhrifa garðvinnunnar er framlenging á fyrrnefndri tvíhyggju: leitin að því óháða og um leið að hinu nátengda. Hvar liggja mörkin – hvar tekur líkami okkar enda og við smjúgum inn í líkama og tilveru annarra?

Í verkum sínum vinnur Vang með marglaga merkingu og efnisleika þar sem textar, myndir og tilvitnanir í önnur verk fléttast saman svo að minnir á klippimynd. Notkun hennar á brotum og sjónrænum þáttum undirstrikar það brotakennda og leitandi í upplifun móðurinnar – tilraunir hennar til að orða það ósegjanlega. Þannig kemur Svørt orkidé orðum að samspilinu milli sjálfsmyndar og framkvæmdar; hver er móðirin eiginlega þegar barnið fjarlægist hana? Og hver er rithöfundurinn þegar tungumálið skortir orð?”

Áhugavert skáld hér á ferð.