SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir∙13. nóvember 2026

ÝTUM ÝTT ÚR VÖR

Kristín Guðmundsdóttir hefur undanfarin ár skrifað bækur fyrir fólk af erlendum uppruna. Sú fyrsta kom út árið 2020 og hefur hún síðan sent frá sér bók á ári.

Kristín starfaði sem matartæknir og kynntist þá talsvert af fólki af erlendum uppruna. Hún veitti því athygli að þótt mörg væru farin að læra íslensku og kynnu orðið talsvert í málinu þá vantaði heppilegt lesefni til að þau gætu haldið áfram að bæta við orðaforða sinn og þekkingu. Kristín ákvað að bregðast við þessu og segir hún bækurnar hafa ,,hlotið frábærar viðtökur á öllum skólastigum, hjá fyrirtækjum, bókasöfnum og einstaklingum heima og erlendis, og víðar. En alls eru níu handrit fyrir almennan markað tilbúin í skrifpoka höfundar og nóg efni fyrir 3 stigið”.

Nú hefur Kristín sett á stofn bókaforlagið Ýtar en áhersla þess er tvíþætt: útgáfa á vönduðu lesefni og skáldsögum fyrir fólk af erlendum uppruna á öllum aldri og námsstigum, ásamt grípandi skáldskap fyrir almennan bókamarkað. Þá hefur Kristín hafið Karolina Fund söfnun til að fjármagna prentun á fyrstu bókunum og koma forlaginu á laggirnar.

Fyrstu tveir titlarnir í forskotsölu:

  1. 1. Hvað leynist í kistlinum: Léttlestrarbók á 3. stigi íslenskunáms

2. Frá norðri til nýrra heima: Fyrsta skáldsaga Kristínar fyrir almennan markað

Slóð á Karolina Fund söfnunina: https://www.karolinafund.com/project/view/6845

Nánari upplýsingar: facebook.com/bokfyrirfolk

Tengt efni