SALLY ROONEY OG MÁLFRELSI

Líkt og flest sjálfsagt vita þá var rithöfundurinn Sally Rooney tilneydd að taka bækur sínar úr sölu í Bretlandi. Frá því á síðasta ári hefur hún styrkt samtökin Palestine Action með ágóða af bóksölu sinni en bresk stjórnvöld hafa skilgreint þau sem hryðjuverkasamtök og þar af leiðandi er litið svo á að Rooney hafi brotið gegn hryðjuverkalögum.
Sally Rooney er fædd árið 1991 á Írlandi. Hún vakti fyrst athygli árið 2015 fyrir grein sína í The Dublin Review. Rooney hafði keppt með rökræðuliði Trinity háskólans og verið útnefnd fremsti keppnisrökræðumaður Evrópu 22 ára gömul. Hún kaus hins vegar að hætta í keppnisliðinu og í greininni gagnrýnir hún m.a. kynjamisréttið í þessum rökræðuheimi og hversu lítið er gert úr raunverulegum samfélagsvandamálum og flóknum pólitískum og sögulegum málefnum.
Greinin gerði Rooney auðvelt fyrir að fá fyrstu skáldsögu sína útgefna og kom Conversations with Friends út árið 2017. Árið eftir kom út sagan Normal People og í kjölfarið skrifaði Rooney handrit að þáttaröð sem bæði hlaut Irish Film and Television Award og tilnefningu til Emmy-verðlauna. Árið 2021 kom út Beautiful World, Where Are You og loks Intermezzo árið 2024. Þá hefur Rooney einnig fengist nokkuð við ljóðagerð. Þrjár af fjórum skáldsögum Rooney hafa komið út á íslensku: Okkar á milli (2018) og Eins og fólk er flest (2019) í þýðingu Bjarna Jónssonar, Fagri heimur, hvar ert þú? (2022) í þýðingu Ingunnar Snædal og nú síðast Millileikur (2025) í þýðingu Bjarna Jónssonar.

Sally Rooney hefur átt mikilli velgengni að fagna. Árið 2017 útnefndi The Sunday Times hana sem „Young Writer of the Year”, Normal People hlaut fjölda verðlauna, þar á meðal verðlaunin Irish Book Awards Novel of the Year, árið 2018, og Beautiful World, Where Are You hreppti verðlaunin Dalkey Literary Awards Novel of the Year, árið 2022.
Rooney hefur oft látið marxískar stjórnmálaskoðanir sínar koma fram í skáldsögum sínum. Persónur hennar glíma við kapítalisma og harma hversu tilgangslaust það sé að berjast fyrir pólitískum breytingum þegar yfirvofandi efnahagslegar og umhverfislegar hamfarir blasa við. Rooney hefur einnig skrifað skoðanapistla fyrir fjölmiðla á borð við The Irish Times og The Guardian þar sem hún hefur meðal annars fjallað um húsnæðiskreppuna á Írlandi og stríð Ísraels og Hamas.
Í kjölfar þess að Rooney neyddist til að hætta sölu bóka í Bretlandi gaf Amnesty International þar í landi út þá yfirlýsingu að hvað sem liði skoðunum fólks á Palestine Action væri það áhyggjuefni þegar hryðjuverkalög leiða til þess að dregið er úr listrænu frelsi og möguleikanum á friðsamlegri pólitískri andstöðu. Höfundar ættu ekki að þurfa að upplifa að bækur þeirra hverfi úr hillum vegna stjórnmálaskoðana þeirra. Ekki ætti heldur að krefjast þess af fólki að það velji á milli þess að fylgja samvisku sinni og að geta séð sér farborða.
Þá hafa vel yfir hundrað íslenskir rithöfundar lýst yfir stuðningi við Sally Rooney. Í stuðningsyfirlýsingunni er bent á að þúsundir friðsamra mótmælenda hafi verið handteknir og þar á meðal margir aldraðir. Enn fremur segr þar að land sem bannar rithöfundum að láta í sér heyra sé ekki frjálst land og klykkt er út með orðunum: Samstaða skiptir máli. Hér má nálgast undirskriftalistann.
Fjöldi alþjóðlegs listafólks hefur sent frá sér sambærilega yfirlýsingu sem ber yfirskriftina: „Sally Rooney er rithöfundur, ekki terroristi“. Hún birtist í The New Statesman, bresku fréttatímariti um stjórnmál og menningu sem gefið er út í London. Á meðal þeirra sem leggja nafn sitt við yfirlýsinguna er nýi nóbelsverðlaunahafinn „okkar” Anne Carson og leikkonan Susan Sarandon. Hér má sjá undirskriftalistann.



Helsta heimild: Britannica
Myndin af Sally Rooney er fengin af vefsíðunni slate.com