Ragnheiður Eyjólfsdóttir
Ragnheiður Eyjólsdóttir fæddist 26. febrúar 1984 í Reykjavík.
Hún lauk BA námi í arkítektúr frá Listaháskóla Íslands árið 2008 og framhaldsnámi frá Aarkitektskolen Aarhus árið 2012.
Ragnheiður skrifaði mikið og myndskreytti sem barn og unglingur en það var ekki fyrr en að háskólanámi loknu sem hún settist niður og skrifaði sína fyrstu skáldsögu, Skuggasögu – Arftakann. Bókin hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin 2015 ásamt Bóksalaverðlaununum í ungmennaflokki. Framhaldið, Skuggasaga – Undirheimar, sem kom út árið 2016 hlaut Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar vorið 2017. Nýjasta bók Ragnheiðar, Rotturnar, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í barna- og ungmennaflokki árið 2018.
Ragnheiður býr í München, Þýskalandi, ásamt eiginmanni, tveimur sonum og ketti.
Ritaskrá
- 2021 miSter einSam
- 2018 Rotturnar
- 2016 Skuggasaga – Undirheimar
- 2015 Skuggasaga – Arftakinn
Verðlaun og viðurkenningar
- 2016 Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar fyrir Skuggasögu - Undirheima
- 2015 Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir Skuggasögu - Arftakann
- 2015 Bóksalaverðlaunin í ungmennaflokki fyrir Skuggasögu - Arftakann
Tilnefningar
- 2019 Til Barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir Rotturnar
- 2018 Til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Rotturnar
- 2016 Til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar fyrir Skuggasögu – Undirheima