Á MORGUN KEMUR NÝR DAGUR

Eygló Jónsdóttir. Ljóðúlfar. Jófríðarstaðir. 2026. 65 bls.
Eygló Jónsdóttir var að senda frá sér sitt tíunda verk, ljóðabókina Ljóðúlfa. Fyrsta verk hennar var ljóðabókin Gjöf sem hún vann í samstarfi við dóttur sína, Eyrúnu Ósk Jónsdóttur, og kom út árið 1997. Eygló hefur einnig skrifað leikrit, smásögur og sögur fyrir börn.
Ljóðabókin Ljóðúlfar skiptist í þrjá hluta. Sá fyrsti ber yfirskriftina „I Stríð og friður“ og geymir 11 ljóð. Í þessum ljóðum vofir yfir ógn stríðs og grimmdar; dregnar eru upp myndir af stríðshrjáðu fólki á vígvelli illskunnar og þar er „mannúðin grafin undir rústum húsanna“ (bls. 11). Ljóðin boða þó einnig von um frið:
Er til of mikils mælst að biðja um frið?
Bara svona frið þar sem fólk fær að vakna, fara á fætur,
spjalla við nágrannana og hlusta á hlátur barnanna.
Svona frið þar sem þú gengur til hvílu eftir langan
vinnudag, nokkuð viss um að á morgun kemur nýr dagur
og það er matur í húsinu og glampi í augum barnanna
þegar þau vekja þig með kossi á ennið og segja pabbi,
ég elska þig.
Þannig frið er ég að tala um.
(bls. 10)
Annar hluti bókar nefnist „II Sorgir og sefun“ og þar undir eru 24 ljóð. Hér er ort um ljúfsárar minningar, ósögð orð, ástina og söknuðinn:
Söknuður
Þú mátt alveg æða inn á skítugum skónum og setja
jakkann þinn á stólbakið í eldhúsinu
í stað þess að hengja hann upp.
Þú mátt alveg skilja kaffibollann eftir á borðinu þegar þú
ert búinn að drekka kaffið þitt
og þú mátt líka skilja klósettsetuna eftir opna
og ruglast í flokkuninni á plasti, pappír og málmi.
Bara ef ég fengi að heyra rödd þína og kitlandi hlátur
einu sinni enn
sjá hlýjuna í augum þínum
einu sinni enn.
(bls. 33)
Þriðji hluti bókar kallast „III Leitir og lausn“ og innifelur 18 ljóð. Hér eru ljóðin orðin sumpart heimspekilegri og geyma ýmsar vangaveltur um tímann og tilvistina. Vonin er jafnan skammt undan, sólin teygir sig upp á himinhvolfið (55) „og lífið fagnar þér/ eins og þú ert.“ (bls. 56). Vonin, gleðin og kærleikurinn hafa jafnan sigur:
Játning
Ég elska
ég elska börn
ég elska konur
ég elska karla
ég elska kvár
ég elska lespíur
ég elska homma
ég elska trans
ég elska þig
ég elska svarta
ég elska brúna
ég elska föla
ég elska dökka
ég elska alla liti regnbogans
og ég elska þig.
(bls. 61)
Ljóðið Játning fangar vel þann tón sem einkennir ljóðabókina. Þrátt fyrir að tekist sé sumpart á við erfið viðfangsefni skín mannkærleikurinn og von um betri heim jafnan í gegn. Þessi ljóðabók er mannbætandi lesning.