SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir∙23. október 2026

FRÆ VONAR, MORSMERKI OG MEÐVIRKNI

Eyrún Ósk Jónsdóttir. Smásagnasafn: Fræ. Jófríðarstaðir. 2026. 68 bls.

Eyrún hefur nú sent frá sér smásagnasafn en hún gaf út sitt fyrsta verk aðeins 16 ára gömul. Síðan hefur hún gefið út ljóðabækur, skáldsögur og barnabækur og hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga.

Smásagnasafn: Fræ geymir sex smásögur sem áður hafa birst á ýmsum vettvangi. Fræ, Mangógrautur og döðlubrauð og Ókindin birtust allar í Húsfreyjunni í kjölfar þess að hljóta viðurkenningu eða verðlaun í smásagnasamkeppni tímaritsins. Ljósrofi og Varapakki birtust í í tímaritinu Skiphóll og Einmana hefur áður komið út sem útvarpsleikrit í uppsetningu Listahópsins Kvistur.

Smásögurnar eru af ýmsu efni og nokkuð ólíkar innbyrðis. Það er oft grunnt á kímninni líkt og þegar hermenn rjúka til við meint morsmerki og meðvirk húsmóðir tekur á móti Grýlu gömlu. Þarna má einnig finna harmrænar frásagnir en þá er vonin oftar en ekki skammt undan og þegar best gegnir birtist líf í einhverri mynd; Líf hjá innheimtunni sinnir einmana einstæðingi og fræ vonar tekst að blómstra í stríðshrjáðu landi.

Smásagnasafn: Fræ reyndist afar ánægjuleg lesning sem vel er óhætt að mæla með.

Hér má hlusta á Eyrúnu leiklesa söguna VarapakkI