SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir∙14. nóvember 2026

MIG LANGAR BARA AÐ VERÐA MAMMA

Júlía Karín Kjartansdóttir. 2026. Móðurkviður. Drápa, 49 bls.

Júlía Karín Kjartansdóttir var að senda frá sér sína fyrstu bók, ljóðabókina Móðurkviður. Hún hefur áður skrifað ljóð og fengið birt, t.d. í skólablaðinu Emblu, sem er gefið út á vegum nemendafélags Menntaskólans við Hamrahlíð. Lesa má ljóðin hér. Júlía Karín er fædd árið 2000 og útskrifaðist hún frá Háskóla Íslands með BA-gráðu í íslensku með ritlist sem aukagrein vorið 2024.

Ljóðabókin Móðurkviður er ljóðsaga þar sem lesandi fylgir ljóðmælanda í gegnum ferlið við að eignast sitt fyrsta barn með aðstoð tæknifrjóvgunar og upplifir með henni þá fjölbreyttu tilfinningaflóru sem því fylgir, allt frá fyrstu skrefum ferlisins og þar til barnið hefur göngu sína í leikskóla.

Þrá ljóðmælanda eftir barni hefur fylgt henni frá unga aldri, líkt og fram kemur í fyrsta ljóði bókar:

Barbí

Ég er fjögurra ára
og vinkona mín segir mér að fara heim
því ég vil bara leika með óléttu Barbí

Hún ætlar að verða bankastjóri þegar hún verður stór
og segir að ég verði að svara upp á nýtt
ég verði að velja alvöru vinnu eins og kennari eða sjúkrabíll
en mig langar bara að verða mamma

(Bls. 5)

Það fer þó svo að það reynist erfitt fyrir ljóðmælanda að verða ólétt. Þá tekur við erfiður tími sem geymir allt í senn von, óvissu, öfund, gleði og sorg: ,,ekkasogin bergmála í leginu” (bls. 11). Og átakanlegt er ljóðið um urtubörnin sem enginn svæfir en skilja má það sem fósturlát (bls. 15).

Vonin er þó aldrei langt undan:

Klasi

Ligg í hvítum slopp
með fæturna á stoðunum
horfi á skjáinn andspænis mér
á litla frumuklasann
sem verður kannski blómasali,
flugmaður
eða bankastjóri
eða mamma

(bls. 19)

Nú þarf að fara gætilega, ,,taka vítamín og fólínsýru” (bls. 23) og ,,lesa ljóð fyrir móðurlífið það verða að vera ljóð eftir konur þú veist en ekki of framsæknar helst eitthvað væmið” (bls. 25). Í þetta sinn fer allt á besta veg og veröldin fær nánast á sig nýrómantískan ljóma. Langþráður draumur hefur orðið að veruleika og því reynist erfitt að skilja við barnið þegar það fer í fyrsta skiptið á leikskólann:

Fylgja

Ég skutla þér í fyrsta sinn í leikskólann
og fæði fylgjuna í anddyrinu

,,Settu hana bara í hólfið hennar,
við klippum svo naflastrenginn eftir útiveru”

Að minnsta kosti ertu ekki að deyja
í sprengjuárás í Palestínu

(bls. 45)

Við skiljum síðan við ljóðmælanda þar sem hún stendur í fjörunni og horfir á barnið busla í fanginu á pabba sínum: ,,bolurinn minn ennþá rakur/ af tárum og brjóstamjólk/ en það stytti upp/ og heiðbláan himin/ ber við haf” (bls. 49).

Þetta er virkilega fín frumraun hjá Júlíu Karín og verður spennandi að fylgjast með henni á ritvellinum í framtíðinni.