ÓÐUR TIL LANGALANGALANGAFA
Guðrún Eva Mínervudóttir. Ljósfaðir. Bjartur 2026.
„Ljósfaðir er skáldsaga, en fleytifull af sannleika, hundrað ára gömlum hviksögum, munnmælum, staðreyndum og söguburði“ (314) skrifar Guðrún Eva í eftirmála skáldsögu sinnar og kjarnar þar á snjallan hátt eðli flestra vandaðra sögulegra skáldsagna. Þannig vinna höfundar slíkra skáldverka; þeir leggjast í mikla rannsóknavinnu og grúsk og nota síðan sitt skáldlega innsæi og hæfileika til að skapa eitthvað nýtt. Þeir sem þekkja til bóka Guðrúnar Evu vita skáldlegt innsæi hennar er mikið og um hæfileika hennar efast enginn, enda hafa verðlaun og viðurkenningar sópast að henni á höfundarferli sem spannar tæplega þrjátíu ár.

Ljósfaðir er fallegt orð, ekki síður en ljósmóðir sem Íslendingar kusu fallegasta orð íslenskrar tungu fyrir einhverjum árum síðan. Orðið minnir reyndar dálítið á himnafaðirinn sjálfan og það gerir ljósfaðirinn í skáldsögu Guðrúnar Eva að vissu leyti líka þar sem hann liggur í lokrekkju, með sitt hvíta skegg og alsjáandi auga, og miðlar af reynslu sinni, visku og þekkingu.
Margar bækur, sagnfræði og skáldverk, hafa verið skrifaðar um íslenskar ljósmæður, sem og ævisögur, frásagnir og sagnaþættir. Minna má á skemmtilegt ljóðrænt verk eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur, Hetjusögur (2020), sem hún vann upp úr slíkum frásögnum og skáldsögu Eyrúnar Ingadóttur, Ljósmóðirin (2012), sem byggir á ævi einnar slíkrar. Færra hefur verið skrifað um ljósfeður og ástæðan er vitaskuld fyrst og fremst sú að það voru miklu færri karlmenn en konur sem tóku á móti börnum og sinntu barnshafandi konum. En þeir voru nokkrir og ástæða til að draga þeirra sögur líka fram í dagsljósið. Þess má geta að í ársritinu Són frá 2025 er birt stórmerkilegt fræðslukvæði sem nefnist Fæðingarhjálpin en þar er í 114 erindum lýst getnaði, meðgöngu, fæðingu og fæðingarhjálp. Höfundur kvæðisins er Jón Bergsted (1795-1863) sem var íslenskur alþýðulæknir og ljósfaðir og árið 2023 kom út, í ritröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar, lækningadagbók hans með titilinum Meinlætahnútar og mýkjandi plástrar. Lækningaiðkanir Jón Bergsteds í Húnavatnssýslu 1828-1838.
Ljósfaðirinn í skáldsögu Guðrúnar Evu er byggður á langalangalangafa hennar, Jónasi Jónssyni (1840-1927) sem var bóndi og smáskammtalæknir í Hróarsdal í Hegranesi Skagafirði og var vinsæll yfirsetumaður og tók á móti yfir 600 börnum, samkvæmt Íslendingabók og skáldsögu Guðrúnar Evu. Sögutími skáldverksins spannar stuttan tíma, frá því í maí 1926 fram í febrúar 1927, skömmu eftir andlát Jónasar. Lesandi áttar sig á sögutímanum af tveimur bréfum sem fléttast inn í söguna, það fyrra er dagsett í janúar 1926 og það síðara í febrúar ári síðar.
Söguflétta bókarinnar er knúin áfram af komu ókunnugs manns á heimili Jónasar og Lilju, þriðju eiginkonu hans, og við kynnumst aðstæðum á bænum og heimilisfólki að miklu leyti óbeint í gegn um augu hans. Sá ókunni kemur frá Ameríku en er reyndar sonarsonar Jónasar gamla og nafni hans. Jónas yngri er hálfur indíáni, svarthærður og dimmeygur, og á við einhverjar sálarkrísur að etja og hefur verið sendur til afa síns til þess að sá síðarnefndi geti hugsanlega orðið honum að einhverju liði. Sjálfur heldur hann reyndar að tilgangur Íslandsferðarinnar sé að rita niður eftir afa sínum læknis- og viskuráð til varðveislu fyrir síðari tíma.
Framan af sögu er dálítið erfitt að átta sig á öllum þeim fjölda persóna sem kynntur er í frásögninni, það eru ekki bara hjónin Jónas eldri og Lilja og þeirra börn, heldur er fjöldi sjúklinga heimilisfastur hjá þeim líka, því engum sem leitar á þeirra náðir er úthýst, hvort sem veikindin er af líkamlegu eða andlegu tagi. Einna eftirminnilegastar eru mæðgurnar Lilja og unglingsstúlkan Guðlaug, sem eru í sviðsljósinu stærstan hluta frásagnarinnar og eiga í mestum samskiptum við Jónas yngri. Persónulýsingar þeirra tveggja eru mjög vel gerðar – erfiðara er að átta sig á Jónasi yngra en það er líklegast hluti af hans persónusköpun að hann er ólíkindatól og flókin persóna. Ýmsar aukapersónur leika skemmtileg hlutverk í sögunni, til að mynda Margrét gamla sem situr við vefstól í sama herbergi og hinn rúmliggjandi Jónas og slær vefinn svo til viðstöðulaust. Hún segir aldrei neitt, nema undir lokin, öllum að óvörum. Hugrenningatengsl við örlaganorn vakna, enda lýkur hennar vinnu um það leyti sem Jónas gamli andast og leggst hún þá sjálf fyrir og bíður dauðans.

Guðrúnu Evu tekst vel að draga upp mynd af mannmörgu sveitaheimili á fyrri hluta tuttugustu aldar á Íslandi, lýsingar á sveitastörfum og aðbúnaði fólks eru trúverðugar og lifandi. Þá eru lýsingarnar á hinum mörgu sjúklingum sem dvelja á bænum margar eftirminnilegar og hjartagæska húsbændanna kemst vel til skila. Hin líknandi Lilja minnir á hina fórnfúsu Florence Nightingale, enda birtist hún Jónasi yngra á þann hátt, eins og sjá má á ljóðabroti sem hann skilur eftir undir kodda sínum þegar hann fer. Þar hefur hann skráð erindi úr ljóði H.W. Longfellow, „Santa Filomena“ sem ort var til heiðurs hjúkrunarkonunni sem gjarnan var vísað til sem konunnar með lampann (the lady with the lamp).
Ég veit hins vegar ekki hvað skal segja um Íslandsför Jónasar yngri í heild sem burðarás sögunnar; samskipti hans við afa sinn og annað heimilisfólk og annað sem að honum snýr. Sú söguflétta endar í nokkuð lausu lofti. Hvað varð um hann? Þroskaðist hann eða læknaðist af andlegum sárum sínum í Íslandsferðinni? Hann kemur vissulega ýmsu róti á heimilisfólkið með gjörðum sínum, helst þá á mæðgurnar Lilju og Guðlaugu, en hverfur svo úr sögunni án þess að sjáanlegar séu afgerandi breytingar á lífi þeirra eða hugsunarhætti. En megin tilgangur Guðrúnar Evu með þessari skáldsögu er væntanlega að reisa langalangalangafa sínum bautastein og því markmiði hefur hún náð.


