SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir∙15. nóvember 2026

PLÁSSIÐ Í HEIMINUM

Kristín Ómarsdóttir. 2026. Móðurást: Lausnargjaldið. Mál og menning, 315 bls.

Nú er komin út fjórða bókin í verðlaunaritröðinni Móðurást eftir Kristínu Ómarsdóttur á jafn mörgum árum. Nýjasta verkið nefnist Móðurást: Lausnargjaldið og er hún öllu lengri en hinar bækurnar en jafnþung, fullyrti skáldkonan þegar hún las upp úr bókinni á útgáfufögnuði á Fiskislóð.

Bækurnar Móðurást fjalla um Oddnýju, langömmu Kristínar. Oddný fæddist 21. júní 1863 á Bæðratungu sem var stórbýli og kirkjustaður í tungunni milli Hvítár og Tungufljóts í Biskupstungum. (Til gamans má nefna að Magnús Sigurðsson (1651-1707) bjó í Bræðratungu á síðari hluta 17. aldar og er söguleg fyrirmynd samnefndrar persónu í Íslandsklukku Halldórs Laxness.). Foreldrar Oddnýjar voru Þorleifur Þórðarson og Þuríður Pálsdóttir sem var seinni kona Þorleifs. Oddný var skírð í höfuðið á fyrri eiginkonu Þorleifs má segja í þakkarskyni því Þuríður leit svo á að hún hefði ekki orðið húsfreyja í Bræðratungu og Oddný hefði ekki fæðst ef fyrri eiginkonan hefði ekki látist.

Í minningarorðum um Oddnýju segir svo frá að hún giftist Árna Jónssyni verkstjóra árið 1892. Þau hófu fyrst búskap í Bræðratungu, síðan á Galtalæk en fluttust til Reykjavíkur árið 1899. Fyrst bjuggu þau að Bráðræði, fluttu þaðan að Holtsgötu 6 árið 1901 og bjuggu þar síðan. Þau eignuðust fjögur börn, einn dreng, Þorleif, sem lést ungur að árum og þrjár dætur, Þuríði, Guðrúnu og Jónínu. Árni dó 1929 og bjó Oddný eftir það með dætrunum Þuríði og Jónínu en Guðrún gifti sig og bjó annars staðar í Reykjavík. Oddný bjó með þessum tveimur dætrum sínum yfir 20 ár og sinntu þær henni fram til æviloka, 27. maí 1953.

Oddný er sögð hafa verið mjög hlédræg og fór hún sjaldan af heimili sínu nema til kirkjugöngu með manni sínum og börnum. Hún var þó glaðlynd og frjáls í huga. Enn fremur var hún „söngvin, söngelsk og ljóðræn svo af bar.“ Oddný eignaðist ung langspil og lærði hún að leika öll þau lög sem þekktust og söng hún einnig tíðum. Það vill svo til að Oddný er sú eina af systkinahópnum sem eignast börn og eins er farið með dóttur hennar Guðrúnu.

Tengsl höfundar við Oddnýju eru í gegnum kvenlegginn: Oddný Þorleifsdóttir eignast dótturina Guðrúnu Árnadóttur (1898-1963) sem átti síðan dótturina Hrafnhildi Oddnýju Kristbjarnardóttur (1938-2014) sem er móðir skáldkonunnar og tileinkar Kristín mömmu sinni nýjustu bókina.

Móðurást: Lausnargjaldið gerist sumarið 1878 í kringum 15 ára afmæli Oddnýjar. Oddný er á mörkum þess að vera stúlka og kona, („strákur í pilsi”), vart komin með brjóst. Samt rúmar tilveran hana varla og rétt svo tæplega húsakynnin:

„til allrar lukkulegrar hentisemi óx ekkert okkar upp fyrir rjáfrið því líkamsvöxtur bæjarbúa virti sinn stakk. Mamma, sem ólst upp nær sjónum, var ein um að standa ekki upprétt á baðstofuloftinu.“ (bls. 14)

En fleira þvingar unglingsstúlkur en lágt baðstofuloftið. Í slættinum þurfa þær að slást við síð pilsin og fá bágt fyrir að klæða sig úr að ofan líkt og drengirnir í sterkri sólinni. Stúlkum er þrengri stakkur skorinn en drengjum; plássið þeirra í heiminum er minna. Og enn verra er að vera vinnukona líkt og kemur svo skýrt fram þegar yfirvaldið lætur Guðlögu krjúpa á kné í drullusvaðið á hlaðinu til að þrífa forug stígvélin og stígur á meðan upp á drifhvíta svuntu konunnar til að þurrka sér á henni líkt og væri hún gólftuska.

Ástin kemur einnig við sögu, í ýmsum myndum og einkum í meinum. Ástarbréf látinnar systur eru lesin sem skemmtiefni, líkt og um neðanmálsbókmenntir væri að ræða, og gjarnan höfð í flimtingum. Tíðarandinn þvingar fólk til að bæla niður tilfinningar sínar og líðan. Hegðun og kenndir sem ekki mega líðast eru sveipaðar dulúðugri fjarlægð ævintýranna og draugalegum þjóðsagnabúningi því annars má fólk eiga von á því að vera keflað og hneppt í gamla fangaskyrtu eða lúbarið og troðið ofan í poka.

Aldarfari og aðbúnaði fólks er vel lýst af Hollendingnum í sögunni enda er glöggt gests augað:

„Í einni heimsókninni í sunnudagskirkjugarðinn sagðist Hollendingurinn hafa fyrstu árin á Íslandi undrast að menn byggju til börn á jafn afskekktum stað í jafn óhrjálegum hreysum, hvar fólk sofi í básum með dýrum. Að hér skyldu fæðast ekta börn með höfuð, munn, útlimi. Og ekta lömb og folöld og kettlingar og hvolpar. Hann hafði verið lengi að sannfærast um að fólkið væri úr sama efnivið og fólkið í útlöndunum.” (bls. 235)

Það er því engin furða að sögupersónur gefi sig ímyndunaraflinu á vald enda er það óheft afl sem þarf ekki að kúldrast með þeim á þröngu baðstofuloftinu: Gríska gyðjan Aþena fylgir Setselju hvert fótmál og systkinin byggja kastala á hól Bræðratungu, með bókasafni og alls kyns aðra sali fyrir veislur og dansleiki, og fleira tína þau til á borð við spítala, sundlaug og járnbrautarstöð. Í þessum heimi eru líka allir þegnar frjálsir (bls. 225-227).

Þessi bók er öllu lengri en hinar þrjár enda má segja að hún hafi að geyma tvær sögur, þar sem bréfasagan hefur laumað sér inn í söguna. Kristín er þó söm við sig og færir öll þessi átök, vonir og vonbrigði, í einstaklega fallegan, frumlegan og ljóðrænan búning. Það má sjá nær hvar sem gripið er niður í söguna en hér horfir Oddný ofan í bæjarlækinn:

„Ég góndi ofan í iðuna: lifandi brúngyllt gler, blautan spegil. Á bakvið okkur rak sólin sig í fjöll og loftaði sér ekki lengur. Eldrósirnar hennar sprungu út, gular og fjólubláar og bleikar og rauðar og svolítið grænar líka. Hún lagðist í kör.“ (bls. 139)

Þetta er 315 blaðsíðna ljóð!

Mynd af listaverkinu prýðir söguna og er birt með leyfi Kristínar

Tengt efni