TAKK FYRIR BOÐIÐ!
Takk fyrir boðið/Thanks for the invitation!
Ása Hlín Benediktsdóttir
Ljóðabókin, Takk fyrir boðið kom út nú í sumar útgefin af Bókstaf-Egilsstöðum og prentuð í Samskipti.
Bókin er ekki stór í sniðum en frábærleg góð, sorgleg en um leið fyndin. Ljóðin eru ort bæði á íslensku og ensku.
Hún fjallar um það að lifa af á tímum kapitalismans
Á ecomómodern tíma, á Iphone 17 síma
byggjum við velferðina
á þriðjaheimsþrælum.
Þeir framleiða lyfin
ryðja skóg
nóg er aldrei nóg
rýma fyrir nýrri uppskeru
af soja,kaffi og lárperu
Hefur kapitalisminn keypt sálu þína og nýtir sér svo hana sér í hag.
veislan mun vara um eilífð
ekkert vesen, ekkert basl
kaupum bara meira drasl!
Hver er ekki sammála þessu? Hver ert þú nema að þú eigir allt það nýjast í þessum heimi? Eða ef við snúum þessu við, hvað er þú er þú getur hvergi fundið frið fyrir ágangi markaðasaflanna?
Hvað er DFND? Af hverju er hann svo vinsæll,
svissneskur reifsenuplötusnúður?
Takk fyrir að bjóða mér!
Á ecomóderntíma, á iphone 17 síma
skrifast ljóðlínur sem í reyndinni
enginn kemur til með að lesa
nema gervigreindin.
Í Brussel og Manhattan
búa draugar Sameinuð þjóðanna
kolefnissjóðanna
og hins frjálsa heims.
Þeir trúa á sinn lögbundna sess
og farsæld þess
að þeir séu handhafar sannleikans
velsældarinnar, friðarins
og mannleikans.
Þakka þér fyrir að bjóða mér!
Ása er sérlega laginn við að yrkja um neikvæðar hliðar kaptilismans (auðhyggjunnar). Enginn vill verða auðhyggjunni að bráð um leið og enginn vill vera án allsnægtarinnar. En með síaukinni markaðssókn markaðarins er hvergi auðan blett að finna þar sem áreiti þeirra nær ekki til. Er ekki hægt að vera með svæði fyrir þá sem allsekkivilja vera með?
Ef við köfum aðeins dýpra í þetta fyrirbæri auðhyggjunnar þá má segja það að við vitum öll að auður hefur tilheigingju til þess að safnast á örfáar hendur eftir því sem hagkerfi sjálft vex, að vinna fjöldans safnast til fjármagnseigenda sem er í raun sturlun því þá er það víst að hinn vinnandi maður upplifir sig sem fífl sem aðrir ráðskast með.
Í iðnbyltingunni drógu skáldin upp dökka mynd af þessarri þróun, barnaþrælkun, örbyrgð og vinnuskilyrði voru yrkisefnin.
Á hinn bóginn sýna rannsóknir að lífskjör almennings hefur tekið miklum framförum út um allan heim á tímum auðhyggjunnar, alþjóðlegrar viðskipta og markaðslausna.
Ég er sjálf fylgjandi því að fara milliveginn hvernig sem það er hægt.
Það er vandratað í þessum heimi.
Takk fyrir að bjóða mér!