SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Ásthildur Helen Gestsdóttir

Ásthildur Helen Gestsdóttir er fædd þann 17. júlí 1983 og uppalin í Grundarfirði á Snæfellsnesi. Þegar hún var 16 ára fluttist hún ásamt fjölskyldu sinni austur á hérað er foreldrar hennar gerðust bændur í Hróarstungu. Ásthildur bjó mest á Egilsstöðum og lauk stúdentsprófi úr Menntaskólanum á Egilsstöðum. Sumarið eftir útskrift fluttist hún ásamt eiginmanni sínum til Reykjavíkur þar sem þau hafa búið síðustu tuttugu og fjögur ár.

Ásthildur skráði sig í nám í bókmenntafræði og ritlist við Háskóla Íslands 2006 og var í fullu námi næstu tíu ár. Á þessum tíma lauk hún við tvö meistarapróf, í bókmenntum og miðaldafræðum og einnig tók hún kennsluréttindi.

Í dag starfar hún sem íslenskukennari við Menntaskólann í Reykjavík og hef gengt því starfi frá árinu 2017.

Ritverk

2026 Við Hveralund

Þýðingar

2024 Spakur spennikló og slóttugi Sámur: Út í bláinn.

2024 Spakur spennikló og slóttugi Sámur: Þjófótta kisan.

2023 Spakur spennikló og slóttugi Sámur: Skuggaskóli.i

2023 Spakur spennikló og slóttugi Sámur

Annað

2021 Þrjú ljóð – Tímarit Máls og menningar.

2009 Rými – smásögur – Hestar eru tvö ár að gleyma,