Ingibjörg Sigurðardóttir
Ingibjörg Sigurðardóttir er fædd 17. ágúst 1925 að Króki í Skagahreppi í Austur-Húnavatnssýslu. Barnaskóla sótti Ingibjörg á Kálfshamarsvík og tók þaðan fullnaðarpróf. Hún vann við kaupavinnu á sumrin, fyrst í Víkum, þá fjórtán ára gömul og síðan þrjú sumur á Syðra-Mallandi. Þrjú sumur vann hún við að hreinsa dún. Tvö sumur var hún á Ásbúðum hjá Ásmundi Árnasyni og konu hans Steinunni Sveinsdóttur. Ingibjörg flutti í Sandgerðis rúmlega tvítug að aldri og gerðist ráðskona ekkjumanns og fékk samastað bæði fyrir sig og fóstru sína. Þessi ekkjumaður hét Óskar Júlíusson sem varð síðar eiginmaður Ingibjargar. Fóstra hennar bjó hjá þeim hjónum allt þar til hún lést 95 ára að aldri. Ingibjörg var mjög afkastamikil skáldkona sem hóf skrif sín rétt um tvítugsaldurinn og skilur hún eftir sig mikla arfleið í íslenskri bókmenntasögu, yfir þrjátíu útgefnar bækur, hljóðbækur og ljóðabók ásamt ótöldu óútgefnu efni. Fyrsta sagan hennar Bylgjur birtist í Hinu Nýja Kvennablaði árið 1956. Eins skrifaði Ingibjörg mjög vinsælar framhaldssögur í hinu þjóðlega heimilisriti Heima er bezt.
Fyrsta skáldsaga hennar, Bylgjur, birtist sem framhaldssaga í Hinu Nýja Kvennablaði árið 1954, en var ekki gefin út á bók fyrr en árið 1961. Skáldsagan Sýslumannssonurinn er fyrsta prentaða skáldsaga Ingibjargar, en hún birtist einnig sem framhaldssaga í Heima er bezt. Síðan þá hefur Ingibjörg gefið út á þriðja tug skáldsagna, og ljóðabókina Hugsað heim (1962).
Ritaskrá
- 2000 Hrafnhildur
- 2000 Sýslumannssonurinn
- 1997 Bylgjur
- 1996 Bergljót
- 1993 Við bláa voga
- 1991 Glettni örlaganna
- 1989 Við bláa voga
- 1988 Snæbjörg í Sólgörðum
- 1986 Beggja skauta byr
- 1985 Höll hamingjunnar
- 1983 Þar sem vonin grær
- 1981 Vorið kemur bráðum...
- 1979 Sumar við sæinn
- 1978 Óskasonurinn
- 1976 Bergljót
- 1974 Auður á Heiði
- 1973 Draumalandið hennar
- 1971 Hrafnhildur
- 1970 Ástir og hetjudáð
- 1968 Vegur hamingjunnar
- 1967 Dalaprinsinn
- 1966 Á blikandi vængjum
- 1965 Feðgarnir á Fremra-Núpi
- 1965 Sjúkrahússlæknirinn
- 1964 Sigrún í Nesi
- 1963 Læknir í leit að hamingju
- 1962 Hugsað heim: ljóð
- 1962 Heimasætan á Stóra-Felli
- 1961 Bylgjur
- 1961 Sýslumannsdóttirin
- 1960 Ást og hatur
- 1959 Systir læknisins
- 1959 Komin af hafi
- 1959 Sýslumannssonurinn
- 1958 Haukur læknir