Kamilla Einarsdóttir
Eva Kamilla Einarsdóttir er fædd 11. janúar 1979. Hún starfar sem bókavörður og er móðir þriggja dætra. Árið 2013 skrifaði hún hressilegan ritdóm í Sagnir, tímarit um söguleg efni, og hún birti sögu í Ástarsögum íslenskra kvenna (2017). Árið 2018 sendi hún frá sér skáldsöguna Kópavogskróniku (2018) sem fjallar ást í Kópavogi á gráglettinn hátt. Í viðtali í Morgunblaðinu, 12.11.2018, segir Kamilla um tilurð bókarinnar:
„Ég hef verið að skrifa og segja sögur síðan ég man eftir mér en aldrei séð fyrir mér að gefa það út. Svo höfðu þeir hjá bókaútgáfunni Bjarti/Veröld samband og buðu mér í kaffi. Ég fór og sýndi þeim það sem ég var að gera þá, sem átti að vera nokkurs konar vegahandbók um Kópavog en endaði samt sem skáldsaga um bömmer og að vera í ástarsorg í Smiðjuhverfinu. Ég bjóst alltaf við að þeir myndu biðja mig um að hætta, en þeir voru alltaf bara svo hressir að nú er þetta bara komið í bók,“ segir Kamilla.“
Kamilla er virk á samfélagsmiðlum, twitter-færslur hennar eru oft skáldlegur skemmtilestur:
Kamilla Einarsdóttir @Kamillae Jan 16
Ástæða nr. 1187 fyrir því að ég meika stjörnumerkjatal: Í kynlífsáramótaspá á mbl í dag stendur að: "Mælt er með því að steingeitin horfi á Netflix og góða grínmynd". -Einmitt, hvers vegna að eltast við fullnægingar þegar heimurinn er fullur af Adam Sandlers myndum?
Mynd: af twitter
Ritaskrá
- 2021 Tilfinningar eru fyrir aumingja
- 2018 Kópavogskrónika. Til dóttur minnar með ást og steiktum
- 2017 Læsi í Burkina Faso og aðrar aðferðir til að taka einhvern á löpp. Ástarsögur íslenskra kvenna, frásagnir úr raunveruleikanum