SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Birgitta Halldórsdóttir

Birgitta Hrönn Halldórsdóttir fæddist 20. júní 1959 að Eldjárnsstöðum í Blöndudal. Birgitta ólst upp að Syðri-Löngumýri, gekk í Húnavallaskóla en fór síðan í Héraðsskólann að Laugarvatni og lauk landsprófi þaðan. Eiginmaður hennar er Sigurður Ingi Guðmundsson frá Leifsstöðum í Svartárdal. Fyrstu búskaparárin bjuggu þau að Leifsstöðum en hafa búið að Syðri-Löngumýri frá vorinu 1986. Þau eiga tvö börn.

Birgitta hefur skrifað skáldsögur og viðtalsbækur. Fyrsta skáldsaga hennar, Inga, kom úr árið 1983 og síðan hafa komið út bækur eftir hana svo til á hverju ári. Sögur hennar sem eru blanda af spennu- og ástarsögum hafa notið mikilla vinsælda lesenda.


Ritaskrá

  • 2012 Ævintýri tvíburanna á Spáni
  • 2011 Ævintýri tvíburanna
  • 2010 Út við svala sjávarströnd
  • 2010 Þar sem hjartað slær
  • 2004 Óþekkta konan
  • 2002 Tafl fyrir fjóra
  • 2001 Játning
  • 2001 Ljósið að handan
  • 2000 Fótspor hins illa
  • 2000 Leyndardómar Reykjavíkur 2000
  • 1999 Eftirleikur
  • 1998 Renus í hjarta
  • 1997 Nótt á Mánaslóð
  • 1996 Ofsótt
  • 1995 Andlit öfundar
  • 1995 Við eigum valið ef við viljum: saga Guðrúnar Óladóttur reikimeistara
  • 1994 Bak við þögla brosið
  • 1993 Örlagadansinn
  • 1992 Dætur regnbogans
  • 1991 Klækir kamelljónsins
  • 1990 Myrkraverk í miðbænum
  • 1989 Sekur flýr þó enginn elti
  • 1988 Dagar hefndarinnar
  • 1987 Áttunda fórnarlambið
  • 1986 Í greipum elds og ótta
  • 1985 Gættu þín Helga
  • 1984 Háski á Hveravöllum
  • 1983 Inga : opinská lífsreynslusaga ungrar stúlku

Tengt efni