
Ingibjörg Kristín Ingólfsdóttir
Ingibjörg fæddist á Stokkseyri árið 1950. Hún er dóttir hjónanna Sigurlaugar Siggeirsdóttur og Ingólfs Gunnarssonar. Ingibjörg útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur árið 1972 og starfaði við það allan sinn starfsaldur.
Ingibjörg hefur alla tíð skrifað þó hún hafi ekki sent frá sér bók fyrr en árið 2024. Hún fór í skapandi skrif eftir starfslok og er bókin afrakstur þeirrar vinnu en þar birtir Ingibjörg hugleiðingar um lífið og tilveruna í formi smáprósa, örsagna og ljóða.
Ritaskrá
2024 Skóhljóð