SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Ritstjórn 7. október 2022

KVENNAFAGNAÐUR Í GUNNARSHÚSI Á MORGUN

Í tilefni af því að Skáld.is hefur opnað nýja og betri vefsíðu er boðið til fagnaðar á morgun, laugardaginn 8. október, í Gunnarshúsi að Dyngjuvegi 8.
 
Ritstýrur og aðrir velunnarar kynna vefinn og síðan stíga á stokk skáldkonurnar Ragnheiður Lárusdóttir, Eyrún Ósk Jónsdóttir og Jóna Guðbjörg Torfadóttir og flytja fáein ljóð.Að því loknu er hverri konu frjálst að lesa upp ljóð eftir sig.
 
Skáldkonur eru hvattar til að koma með bækur sínar og bjóða til sölu á góðu verði eða til að skiptast á bókum.
 
Húsið opnar kl. 14 og eru léttar veitingar í boði. Öll eru velkomin.