SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir18. október 2022

ARNDÍS LÓA sendir frá sér ljóðsöguna SKURN

 

Út er komin ný bók eftir Arndísi Lóu Magnúsdóttur, Skurn. Fyrsta bók Arndísar Lóu, Taugaboð á háspennulínu, kom út árið 2020 og vakti  mikla athygli. Arndís Lóa hlaut Nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta fyrir handritið og bókin hlaut tilnefningu til Maístjörnunnar sem ljóðabók ársins.

Nýju bókinn er lýst sem ljóðsögu og í kynningu útgefanda, Unu útgáfuhúss, segir:

Ung stúlka stríðir við svefnleysi eftir að tvíburasystir hennar lendir í slysi. Hún reynir að dreifa huganum með því að hugsa um allt sem er kringlótt. Skurn er fíngerð ljóðsaga um aðskilnað og áföll, styrk og viðkvæmni, og eftir stendur spurningin hvort hægt sé að skilja sársauka annarra.

 

Arndís Lóa Magnúsdóttir er fædd 1994 og er bæði skáld og þýðandi úr frönsku. Hún hefur þýtt tvær skáldsögur: Ru eftir Kim Thúy og Samþykki eftir Vanessu Springora, þá síðarnefndu þýddi hún í félagi við Guðrúnu Vilmundardóttur.