Soffía Auður Birgisdóttir∙24. október 2022
VEFUR UM RAUÐSOKKAHREYFINGUNA opnaður í dag
Í dag er haldið upp á Kvennafrídaginn, 24. október, og af því tilefni var opnaður nýr vefur um Rauðsokkahreyfinguna.
Vefurinn er vistaður hjá Kvennasögusafni Íslands og á honum má lesa sér til um sögu hreyfingarinnar, hugmyndafræði, baráttumál og ýmislegt fleira.
Skáld.is óskar konum og kvárum til hamingju með nýja vefinn!