Soffía Auður Birgisdóttir∙24. maí 2022
NÝ BÓK FRÁ DOKTOR STEINUNNI!
Í gær var Steinunn Sigurðardóttir skáld sæmd heiðursdoktorsnafnbót frá Háskóla Íslands, ásamt Hannesi Péturssyni. Og í dag kom út ný ljóðabók hennar, Tíminn á leiðinni. Í kynningu Máls og menningar á bókinni segir:
Tíminn á leiðinni er ellefta ljóðabók höfuðskáldsins Steinunnar Sigurðar-dóttur. Meginstef hennar er tíminn sjálfur, ýmist gjöfull eða grimmur; kynslóðir sem koma og fara, árstíðir, upphaf og endalok – horft er bæði inn á við og út í heiminn, á náttúruna, lífið sjálft. Ljóðmálið er leikandi létt og hnitmiðað, myndir dregnar skýrum og oft óvæntum dráttum, kaldhæðni og djúp alvara vegast á í skörpum og kjarnmiklum ljóðum.
Auk ellefu ljóðabóka hefur Steinunn sent frá sér fjórtán skáldsögur, eina barnabók, tvö smásagnasöfn og tvær ævisögur, auk þess að skrifa sjónvarpsleikrit.
Í nýju ljóðabókinni er meðal annars að finna eftirfarandi ljóð:
FEMME FATALE
Ekkert stóðst henni snúningekki kirsublómaskýið,ekki rósagarðurinn.Ekkert fagurt dýr stóðst henni snúning,engin höfuðskepna heldur.Ekki fyrr en Vetur Konungur gómaði hana í skógarrjóðrinu,þar sem blágrenitrén standa vörð allan hringinn.Frysti hana frá toppi til táar, hina óviðjafnanlegu,litla hattinn hennar líkaog stráði gullslegnum sólarsnjóá ljósbláa silkikjólinn síðaá drúpandi eyrnalokkana úr lapisþangað til aðeins varð eftir hvítagull.Við dimmumót fóru þeir að tínast út úr skóginum,haltrandi sumir, órakaðir, jafnvel timbraðir.Aðrir vel á sig komnir og sléttir í framan.Slógu hring um sína óhreyfanlegu, óviðjafnanlegu,í skógarrjóðrinu.Kyrja lágum bassaröddum tregansum flöktandi augnaráð hennar í stiganum,titrandi augnhárin,óviðjafnanlegan nefbroddbjörtu bringunaskæru röddinasem hljómar ofar lækkandi bassaröddumí yfirvofandi næturheiminum, með hundslappadrífu á köflum.
(Birt með leyfi útgefanda)
Skáld.is óskar Steinunni Sigurðardóttur hjartanlega til hamingju með doktorstitilinn og nýju bókina.