SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Ritstjórn14. mars 2022

VÍÐÁTTA eftir Gerði Kristnýju

 
Í tilefni af 40 ára afmæli Kvennalistans samdi Gerður Kristný ljóðið VÍÐÁTTA sem Skáld.is fékk leyfi til að birta.
 
Við óskum Kvennalistakonum til hamingju með afmælið og þökkum starf þeirra og baráttu.
 
Gerði Kristnýju óskum við til hamingju með frábært nýtt ljóð sem birtir magnaða náttúrumynd um leið og hún vísar í kvennabaráttuna.
 
 
 
 
VÍÐÁTTA
 
Frá hæsta tindi
sést hvar jökullinn
skreið yfir landið
 
mótaði gljúfur og gil
 
sló sporði
í hvað sem
fyrir varð
 
Og við
sem héldum að
ekkert ynni á
þessum eldgömlu klöppum
- mótuðum
í Miklahvelli?
 
Nú blasa
ummerkin við
 
rákir ristar
í berg
 
fótfesta
allra sem á
eftir koma
til að sjá með
eigin augum
að þar sem dalir
eru djúpir
verða fjöllin há