SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir28. maí 2021

MARGRÉT TRYGGVADÓTTIR VERÐLAUNUÐ

Handrit Margrétar Tryggvadóttur að ungmennabókinni Sterk hlaut Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur í gær við hátíðlega athöfn í Höfða. Sagan kom út hjá Máli og menningu því samfara.
 
Verðlaunin eru veitt fyrir óprentað handrit að barna- eða ungmennabók og er ætlað að stuðla að metnaðarfullum skrifum fyrir þann aldurshóp, í anda Guðrúnar Helgadóttur. Verðlaunaféð er ein milljón króna.
 
Hátt á fjórða tug handrita bárust í samkeppnina en dómnefndin var samdóma um að verðlaunin skyldu falla í skaut Margrétar. Í sögunni kveður við nýjan tón í íslenskum bókmenntum þar sem fjallað er meðal annars um transfólk og innflytjendur í samfélaginu, líkt og segir í umsögn dómnefndar:
 
Handritið sem bar sigur úr bítum heitið Sterk og er eftir Margréti Tryggvadóttur. Þetta er grípandi saga sem dregur upp mynd úr lífi minnihlutahópa á Íslandi. Sagan fjallar meðal annars um daglegt líf og viðkvæma stöðu transfólks og innflytjenda í samfélaginu. Hér opnast sagnaheimur sem fáir rithöfundar hafa fetað. Það er mikilvægt fyrir þroska og skilning lesenda að eiga kost á að upplifa fjölbreytileika samfélagsins í gegnum lestur, setja sig í spor ólíkra sögupersóna og finna samkennd með þeim. Það að söguhetja er trans er hvorki aðalatriði frásagnarinnar né óvænt atriði til að þjóna fléttu hennar heldur fellur sá veruleiki átakalaust inn í söguþráðinn. Af einlægni og með virðingu fyrir viðfangsefninu hefur Margréti tekist að setja fram sögu sem fjallar um vegferð transstúlku og þörf hennar fyrir viðurkenningu fjölskyldu og vina; að vera metin á eigin forsendum. Á meðan hún er að fóta sig í nýjum veruleika flækist hún í dularfullt mál innflytjanda sem hún er knúin til að leysa. Aðalpersóna sögunnar heitir Birta. Hún hefur flúið heimahaga, þar sem henni finnst enginn af hennar nánustu skilja sig, henni finnst hún litin hornauga og vera afskipt. Í Reykjavík sér hún tækifæri til að byrja nýtt líf. Sjálfsmynd Birtu er löskuð og henni finnst þægilegast að einangra sig frá öðrum. Stökkið inn í heim hinna fullorðnu er þó ekki einfalt og hún á fullt í fangi með að sinna námi og vinnu og standa skil á leigu kjallaraherbergis. Hún forðast kynni við fólk sem hún deilir með bað- og eldhúsaðstöðu. Þegar áhyggjur hennar vaxa yfir velferð innflytjanda sem leigir næsta herbergi dregst hún inn í dularfullt mál. Spennan magnast með hverjum kafla er Birta setur sjálfa sig í hættu og stígur út fyrir eigin þægindaramma með það eitt í huga að grafa upp sannleikann. Dómnefnd þakkar Margréti innilega fyrir innlegg sitt í flóru barna- og unglingabóka á Íslandi.
 
Í dómnefnd sátu Geir Finnsson, formaður, Halla Þórlaug Óskarsdóttir og Heiða Rúnarsdóttir.
 
Þetta er í þriðja sinn sem Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur eru veitt. Skila­frest­ur hand­rita fyrir næstu samkeppni er 18. október 2021 og skulu þau ber­ast Reykja­vík bók­mennta­borg UNESCO, Ráðhúsi Reykja­vík­ur.
 
Myndin af Margréti er fengin af vef Reykjavíkurborgar.