Jóna Guðbjörg Torfadóttir∙ 9. febrúar 2023
ÞAKKIR TIL STYRKTARAÐILA!
Vefurinn Skáld.is er rekinn af sjálfboðaliðum sem sömuleiðis kosta hann. Því var brugðið á það ráð á síðasta ári að kalla eftir styrkjum frá velunnurum okkar, í formi vel viðráðanlegra mánaðargreiðslna.
Nú eru styrktaraðilar orðnir 19 talsins sem greiða ýmist 5, 10 eða 15 evrur mánaðarlega. Það munar sannarlega um þessar upphæðir og er þessu góða fólki þakkað kærlega fyrir stuðninginn!
Ef fleiri vilja leggjast á árar með okkur, og hjálpa til við að halda vefnum á floti, þá má skrá sig hér og greiða sem svarar 1000-2000 krónum mánaðarlega. Við munum þess í stað leitast við að halda áfram að setja sjóðheitt efni á vefinn!
Velkomin í fríðan hóp styrktaraðila!