SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Guðrún Steinþórsdóttir13. ágúst 2021

LJÓÐ VIKUNNAR - Sólstafir

Ljóð vikunnar er skemmtileg paródía á íslensk fjallkonukvæði en það er eftir Lindu Vilhjálmsdóttur og nefnist „Sólstafir“. Linda hefur sent frá sér átta ljóðabækur en „Sólstafir“ birtist í hennar fyrstu bók, Bláþræði, sem kom út árið 1990.
 
Sólstafir
Og ég man eftir morgni
í möðrudal á efrafjalli
og stúlku sem var þannig búin
að ský huldi hana í framan
og rjómaskán ofan í mitti
og niður um hana féll snjóskriða
og hún stóð rétt eins og kerti
steypt úr tólg eða hvítri hraunleðju
sem í jaðrana tvinnaðist saman við fjaðrirnar
kríngum svanshaminn í götunni.
 
Þessi stúlka sýndist horfa í fjarskann
á eitthvað sem líktist stjörnu með hala
eða herskara álfta í hæstum hæðum
og svo spurði hún í einlægni:
Er þetta resept eða ástarbréf gæskur?
 
Og þegar ég rifja þetta upp
líður mér eins og hafnarstúdent
sem er nýstiginn á skipsfjöl.