SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir14. apríl 2023

HLAÐVARP UM HULDU

Út eru komnir tveir hlaðvarpsþættir um skáldkonuna Huldu.

Tónlistarkonurnar Helga Kvam og Þórhildur Örvarsdóttir unnu þættina upp úr dagskrá sem þær fluttu víða um land árið 2018. Í þáttunum er blandað saman tali og tónum, sagan sögð af ævi og störfum Huldu, tónlist flutt við texta hennar og ljóð eftir hana lesin.

Aðrir tónlistarflytjendur eru Jón Þorsteinn Reynisson harmonika og Tómas Leó Halldórsson kontrabassi. Upptökustjóri tónlistar er Haukur Pálmason og var tónlistin tekin upp í Akureyrarkirkju og K21 Studios í janúar og febrúar 2023.

Unnur Benediktsdóttir Bjarklind fæddist þann 6. ágúst 1881 og lést 10. apríl 1946. Hún skrifaði ljóð og prósa undir skáldanafninu Hulda. Eitt þekktasta ljóð hennar er ættjarðarljóðið Hver á sér fegra föðurland sem var samið í tilefni af lýðveldisstofnuninni 1944 og var annað tveggja ljóða sem vann samkeppni um hátíðarljóð.

Verkefnið er styrkt af Sóknaráætlun Norðurlands eystra.

- - - - - - - - - - - - - - - - - -

Hægt er að hlusta á þættina á helstu streymisveitum:

  • Spotify:
    https://open.spotify.com/show/6btS61uydOyJWsZYDHnONn?si=d514a297c7504b25
  • Soundcloud (þarf ekki áskrift til að hlusta):
    https://soundcloud.com/helga-kvam/sets/hulda
  • Podbean (þarf ekki áskrift til að hlusta):
    https://www.podbean.com/pu/pbblog-acxrs-b2fab9

 

Nánari upplýsingar veita:
Helga Kvam helgakvam@gmail.com s. 865 8052
Þórhildur Örvarsdóttir hilda.orvars@gmail.com s. 864 1804