Magnea Þuríður Ingvarsdóttir∙25. ágúst 2023
HRINGFARI
Út er komin ljóðabók Rakelar Hinriksdóttur. Bókin heitir Hringfari og hefur að geyma falleg ljóð ásamt teikningum. Bókin er gefin út af Flóru, Akureyri og prentuð í Prentsmiðjunni þar í bæ og er ein af ljóðabókum Pastels og er sú 35. í röðinni. Ljóðabókin er gefin út í 100 árituðum eintökum.
Rakel yrkir hér um árstíðirnar og fyrsta ljóðið er um litla stúlku sem snýr sér í hringi og og hlær. Teikningarnar eru einfaldir í byrjun bókar en verða óræðari og flóknari þegar líður á.
Þetta er þriðja ljóðabók Rakelar, hinar bækurnar eru Andleg algebra sem kom út árið 2022 og Aðstandandi frá 2020.