SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir31. ágúst 2023

VINNINGSLJÓÐIN LESIN Á LJÓSANÓTT

Menningarfélagið Bryggjuskáldin efndi til ljóðasamkeppni á Suðurnesjum í tilefni af Ljósanótt en skilafrestur rann út 28. ágúst. Vinningsljóðin úr keppninni verða tilkynnt á morgun, föstudaginn 1. september kl. 16.00 í Miðju Bókasafnsins. 

Veitt verða verðlaun fyrir besta ljóðið og auk þess fá tvö önnur ljóð viðurkenningu. Í dómnefnd sitja: Anton Helgi Jónsson, Ragnheiður Lárusdóttir, Guðmundur Magnússon, Gunnhildur Þórðardóttir og Helga Soffía Einarsdóttir.

Öll velkomin og viðburðurinn er ókeypis.