SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir 1. september 2023

STELPUR STRANGLEGA BANNAÐAR - Útgáfuhóf

Útgáfu fyrstu bókar Emblu Bachman, Stelpur stranglega bannaðar, verður fagnað á Borgarbókasafninu Spönginni laugardagijnn 2. september frá kl. 12-14. Boðið verður upp á veitingar, drykki, upplestur, tónlist og myndir til að lita. Hægt verður að kaupa eintök af bókinni á staðnum og fá áritað hjá höfundi.

Stelpur stranglega bannaðar er barna- og unglingabók og er kynnt á þessa leið:

Bíddu ha?

 

Sónarmynd… í símanum hennar ömmu?

GÆTU HLUTIRNIR MÖGULEGA ORÐIÐ EITTHVAÐ VERRI?

Nýja stelpan í bekknum er búin að stela bestu vinkonu Þórdísar. Staða hennar sem eina stelpan í stórfjölskyldunni er kannski í hættu. Þórdís vonar að þetta séu óþarfa áhyggjur; að hún haldi stöðu sinni í fjölskyldunni og nái að endurheimta bestu vinkonu sína.

 

Hún þráir ekkert heitar en að allt verði eins og áður.

 

Útgáfuhófið er sem fyrr segir á morgun og eru öll velkomin.