SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir 8. september 2023

BARNABÓKAVERÐLAUN GUÐRÚNAR HELGADÓTTUR VEITT Í GÆR

Í gær voru Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur veitt við hátíðlega athöfn í Höfða og komu þau í hlut nýs höfundar Kamillu Kjerúlf  fyrir handritið Leyndardómar draumaríkisins.

Barnaverðlaunin voru stofnuð árið 2018 til heiðurs Guðrúnu Helgadóttur rithöfundi og voru nú veitt í fjórða sinn. Verðlaunin eru veitt fyrir óprentað handrit að barna- eða ungmennabók og styðja þannig við nýsköpun í greininni. Að þessu sinni bárust 24 handrit.

Kamilla Kjerúlf er fædd árið 1995 og er með meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands. Leyndardómar draumaríkisins er hennar fyrsta bók og verður gefin út hjá Bjarti / Veröld.

„Ég hef allt frá unga aldri haft mikla ástríðu fyrir lestri og tel það mjög mikilvægt að börnum standi til boða gott úrval af fjölbreyttum barnabókum,“ sagði Kamilla þegar hún veitti verðlaununum viðtöku. Að hafa fengið verðlaunin fyrir sína fyrstu bók er henni mikil hvatning til að halda áfram að skrifa.

 

Í ræðu sinni þakkaði Kamilla Guðrúnu Helgadóttur fyrir hennar ómetanlega framlag til barnamenningar en Guðrún lést árið 2022.

 

Verðlaunabókinni er lýst á eftirfarandi hátt:

 

„Í Leyndardómum draumaríkisins tekst höfundi að smíða vel úthugsaðan ævintýraheim sem söguhetjan flakkar um með flæðandi hætti. Persónur eru vel framsettar og trúverðugar og ritstíllinn góður. Aðalpersónan Davíð stendur frammi fyrir vandamáli í raunheimum sem ævintýralegar heimsóknir hans í draumalandið hjálpa honum að takast á við. Sögupersónan vex fyrir vikið og sýnir ungum lesendum að oft má yfirstíga vandamál sem virðast óleysanleg. Jafnframt hefur höfundur gætt þess að einskorða söguna ekki við eitt kyn og eru samskipti Davíðs við aðrar persónur bæði eðlileg og uppbyggileg. En það sem er þó fyrir mestu er sú skoðun dómnefndar að sagan er skemmtileg og spennandi og munu ungir lesendur án efa taka henni fagnandi, eins og bókum Guðrúnar Helgadóttur meðan að hennar naut við.“

 

Dómnefndina skipuðu Kristinn Jón Ólafsson, Yrsa Sigurðardóttir og dr. Guðrún Steinþórsdóttir.