SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir25. október 2023

ÚTGÁFUHÓF: Einlífi - ástarrannsókn

Á morgun verður fagnað útkomu bókarinnar Einlífi-ástarrannsókn eftir Hlín Agnarsdóttur. Hlín segir frá og les upp úr bókinni og Hildigunnur Einarsdóttir syngur nokkur ástarljóð við undirleik Guðrúnar Dalíu píanóleikara. Boðið verður upp á veitingar. 

Viðburðurinn fer fram í Ásmundarsal og stendur frá 17-20. Öll eru velkomin.

 

Einlífi - ástarrannsókn er kynnt svo í Bókatíðindum:

Konur eru alltaf að bjarga karlmönnum. Í því er ástarkraftur þeirra fólginn og sá kraftur er auðmagn sem allt samfélagið og ekki síst karlmenn njóta góðs af.

Einlífi - ástarrannsókn er þriðja bók Hlínar Agnarsdóttur þar sem hún vinnur úr minningum sínum og lífsreynslu. Í þetta sinn gengur hún skrefinu lengra en í hinum tveimur og leyfir skáldskapnum að blanda sér í málin. Mannfræðingurinn Saga Líf fær einlífa rithöfundinn Eyju Björk til að tala um ástalíf sitt í nokkrum viðtölum. Hvernig fer kona að því að finna traust í nánu sambandi eftir að hafa sofið hjá „hinum og þessum“? Er ástin til eða er hún bara uppfinning manneskjunnar?