SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Magnea Þuríður Ingvarsdóttir 6. nóvember 2023

KONA SKRIFAR UM KONUR

Jónína Óskarsdóttir gefur út bókina Konurnar á Eyrarbakka.

Í vikunni kemur út áhugaverð bók Nínu Óskars en hún hefur áður gefið út nokkrar smásögur. Hún er útskrifuð með MA í hagnýtri menningarmiðlun og stundar nám íRitlist frá Háskóla Íslands og hún vinnur hjá Borgarbókasafninu. Hún segir svo um nýju bókina: 

 

Undanfarinn áratug hef ég tekið viðtöl fyrir bók sem hefur borðið vinnuheitið Konurnar á Eyrarbakka. Verkið er nú í lokaferli og bókin að koma út. Ástæða þess að ég er að draga fram sögu kvenna er að framhjá henni hefur verið gengið lengi en mér finnst skipta máli að hún varðveitist í sem flestum myndum.

Með bókinni Konurnar á Eyrarbakka er ég að skila áfram verki sem byggist á sagnagleði móður minnar sem ólst upp á Eyrarbakka hjá ömmu sinni og afa. Upphaflega hafði ég samband við konur eða ættingja kvenna sem mamma mín hafði sagt mér frá sem síðan bentu á aðrar og svo koll af kolli.

Ég setti mér það markmið með viðtölunum að fá sem besta sýn yfir líf kvennanna sem um ræðir og ekki trufla þeirra frásögn með störfum eiginmanna og feðra. Viðtölin eru bæði við konur og karla en um konur. Í frásögnunum reyndi ég að halda talsmáta kvennanna sem mest og best og er sjálf sem ósýnilegust í textanum.

 

Við hjá skáld.is óskum henni innilega til hamingju með þetta áhugaverða verk.