SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Magnea Þuríður Ingvarsdóttir27. maí 2024

HUGARFRELSI

Hrafnhildur Sigðurðardóttir og Unnur Arna Jónsdóttir gáfu út handbók fyrir uppalendur til að hjálpa börnum og unglingum að verða besta útgáfan af sjálfum sér árið 2015. Í bókinni er lögð áhersla á góða og djúpa öndun, slökun, hugleiðslu og sjálfsstyrkingu en allt eru þetta aðferðir sem hafa reynst börnum og unglingum vel. Með aðferðunum verður einbeiting þeirra meiri, vellíðan eykst, jákvæð hugsun verður oftar fyrir valinu og sjálfsmyndin eflist.

Í hverjum kafla bókarinnar er fróðleikur fyrir uppalendur, verkefni fyrir börn og unglinga og hugleiðslusögur sem leiða inn í ævintýraheim þar sem ímyndunaraflið er virkjað.

Höfundarnir eru báðar margra barna mæður og hafa áralanga reynslu af barnauppeldi, kennslu og námskeiðahaldi.

Bókin hefur að geyma fjölbreytt efni til að bæta andlega og líkamlega líðan ásamt kennsluleiðbeiningum. Þær hafa einnig staðið fyrir fjölmörgum fyrirlestrum og námskeiðum fyrir börn og fullorðna þar sem áhersla er lögð á sjálfsstyrkingu, öndun, slökun og hugleiðslu.

Mikil þörf er á að kenna börnum að slaka á í nútímaþjóðfélagi.