SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir11. júní 2024

ÚTGÁFUHÓF: HLJÓÐ

Á morgun verður útgáfu ljóðabókarinnar Hljóð fagnað í Guðmundarlundi. Þetta er fyrsta ljóðabók Sigrúnar Erlu Hákonardóttur en Ragnar Ingi Aðalsteinsson ritstýrði henni og Bókaútgáfan Sæmundur gaf út.

Ljóðabókin Hljóð er kynnt svo:

Bókin skiptist í tvo hluta: óbundin ljóð, myndræn og stundum draumkennd, jafnvel torráðin, og bundin ljóð, formföst og leikandi létt kveðin, þar á meðal eru stökur hennar, hnitmiðaðar og grípandi.

 

Fagnaðurinn hefst kl. 16:30 á morgun og eru öll velkomin.

 

Hér má heimsækja síðu Sigrúnar Erlu þar sem hún birtir ófá ljóð, bæði bundin og óbundin.