Soffía Auður Birgisdóttir∙13. ágúst 2024
GADDAKYLFAN ENDURVAKIN
HIÐ ÍSLENSKA GLÆPAFÉLAG sendi frá sér tilkynningu fyrir tveimur dögum þar sem fram kemur að smásagnasamkeppnin GADDAKYLFAN hefur verið endurvakin. Við hvetjum allar ritfærar konur sem unna glæpasögum að hefjast handa sem fyrst því skilafrestur er skammur: 29. september næstkomandi!
Hér fyrir neðan má lesa tilkynninguna í heild sinni:
Hið íslenska glæpafélag kynnir með grunsamlega spennandi gleði og stolti:
Gaddakylfan 2024!Það gleður okkur ósegjanlega að greina frá því að Gaddakylfan, hin ógnvekjandi og æsispennandi smásagnasamkeppni Hins íslenska glæpafélags, hefur verið endurvakin í samvinnu við Storytel á Íslandi og Iceland Noir!Að þessu sinni er óskað eftir glæpa- og/eða spennusmásögum í lengri kantinum, eða frá 6.000 og allt að 10.000 orðum. Keppnin er sem fyrr öllum opin.Skila skal handritum í rafrænu formi á netfangið gaddakylfan@hig.is, fyrir miðnætti að kvöldi 29. september 2024. Þaðan verða þær framsendar, ólesnar og nafnlaust, til þriggja manna dómnefndar HÍG, Iceland Noir og Storytel.Úrslit verða svo kynnt á sérstökum viðburði á (glæpa)bókmenntahátíðinni Iceland Noir, sem haldin verður dagana 20.–23. nóvember, þar sem þrjár bestu sögurnar og höfundar þeirra verða í sviðsljósinu.Höfundur sögunnar sem dómnefndin metur besta hlýtur Gaddakylfuna að launum, auk verðlaunaskjals og miða á Iceland Noir. Höfundar sagnanna í öðru og þriðja sæti fá líka verðlaunaskjal og miða á Iceland Noir. Einnig verða verðlaunasögurnar þrjár og allar aðrar sem dómnefnd metur útgáfuhæfar gefnar út á hljóðbók hjá Storytel.
Gaddakylfan 2024 er hluti af hátíðarhöldunum Glæpafár á Íslandi, sem félagið stendur fyrir í tilefni 25 ára afmælis síns. Upplýsingar um alla viðburði Glæpafársins má finna á Facebook-síðu félagsins: