Steinunn Inga Óttarsdóttir∙17. september 2024
SVIKASKÁLD MEÐ LJÓÐABÓK OG PARTÝ
Svikaskáld? Hvað er nú það?
Sex konur sem skálda saman, skrifa saman!
Svikaskáldin mæta á fimmtudaginn í hóf af tilefni af útgáfu ljóðabókarinnar Ég er það sem ég sef. Verður blásið til útgáfuveislu í Ásmundarsal fimmtudaginn 19. september kl 20:00. Fljótandi veigar, ljóðalestur, bækur á tilboði, kvöldbirta og gleði.
Svikaskáldin eru Fríða Ísberg, Melkorka Ólafsdóttir, Ragnheiður Harpa Leifsdóttir, Sunna Dís Másdóttir, Þóra Hjörleifsdóttir og Þórdís Helgadóttir.
Listakonan Helena Margrét á forsíðumyndina á kápu bókarinnar.