SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir15. október 2024

SKRÍMSLIN 20 ÁRA

Það var kátt á hjalla um helgina en þá buðu skrímslin til veislu í Forlaginu á Fiskislóð. Skrímslaveisla er ellefta bók Áslaugar Jónsdóttur um skrímslavinina sem hún hefur unnið í samstarfi við Kalle Güettler og Rakel Helmsdal.

Sögurnar um litla og stóra skrímslið hafa komið út á fjölda tungumála og hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar.

Í sögunni Skrímslaveisla heldur litla skrímslið ægilega fína veislu og er það við hæfi því í ár eru tuttugu ár síðan fyrsta skrímslabókin kom út.