BYGGINGARLIST FYRIR BÖRN
Alma Siguðardóttir arkitekt, sem er sérfræðingur í varðveislu bygginga og starfar sem verkefnastjóri í húsadeild Þjóðminjasafns Íslands, hefur sent frá sér bók um byggingarlist fyrir börn. Hún hefur áralanga reynslu af því að miðla efni bókarinnar til barna.
Bókin heitir Byggingarnar okkar og fjallar um þá strauma og stíla sem einkenna íslenska byggingarlistasögu, allt frá torfhúsum til steinsteyptra húsa. á einfaldan hátt með það að markmiði að sem flestir geti fræðst um íslenska byggingarlistasögu. Teikningar í bókinni eru eftir Rakel Tómasdóttur.
Lestrarhesturinn, og álitsgjafi Skáld.is, Rán Tryggvadóttir skrifar á fjasbókarsíðu sína:
Keypti þessa um daginn í hinni ágætu verslun á Kjarvalsstöðum með barnabörnin í huga. Las hana síðan ein og sjálf um helgina og fannst hún fróðleg og lærði ýmislegt um íslenska byggingalist. Örugglega gott kennsluefni fyrir börn, kannski uppúr 10 ára, og væri hægt að fara í einhvers konar ratleik byggða á bókinni fyrir yngstu börnin en kannski ekki „lestur fyrir svefninn” bók. Fallegar og skýrar myndir.
Höfundur bókarinnar sagði í viðtali í þættinum Í býtið, á Bylgjunni, að næði hún að selja 250 bækur myndi hún þakka fyrir það með því að gefa öllum grunnskólum eintak af bókinni. Hlusta má á viðtalið hér.