Jóna Guðbjörg Torfadóttir∙ 4. apríl 2025
ÁRSTÍÐARVERUR OG HRESSIR KRAKKAR
Nú líður að Barnamenningarhátíð, en hún stendur yfir dagana 8.-13. apríl, og því vert að setja sig í stellingar. Það má taka forskot á hátíðina með því að mæta með börnin á útgáfuhóf á morgun, laugardag, kl. 14.
Fagnað verður útgáfu bókarinnar Árstíðarverur eftir Diljá Hvannberg Gagu og Linn Janssen í bókabúð Sölku. Lofað er léttum veitingum, áritaðri bók á tilboðsverði og föndri fyrir hressa krakka.
Um bókina Árstíðarverur segir svo:
Bjarni og bekkjarfélagar hans eru að læra um árstíðirnar í skólanum. Hann verður því heldur hissa þegar hann vaknar einn vormorgun og allt er á kafi í snjó! Þetta passar alls ekki við það sem kennarinn sagði. Hann fer út að rannsaka málið en hittir þá fyrir kúnstugar verur sem segjast stýra veðrinu en verst er að þær eru að rífast!Diljá Hvannberg Gagu og Linn Janssen færa hér ungum lesendum góða skýringu á veðurfarinu á fróni í fallegri sögu sem yljar um hjartarætur og er tileinkuð öllum sem alist hafa upp við íslenska veðráttu.