Jóna Guðbjörg Torfadóttir∙ 5. apríl 2025
Í DAG ERU SKRÍMSLI Í BOÐI!

Sýningin í Gallerí Fold stendur til 26. mars.
Áslaug Jónsdóttir á langan og farsælan feril að baki sem einn af vinsælustu barnabókahöfundum þjóðarinnar. Bækur sem hún hefur skrifað eða myndlýst skipta tugum og hún hefur hlotið fyrir þær margskonar verðlaun eins og Íslensku bókmenntaverðlaunin, Barnabókaverðlaun Menntaráðs Reykjavíkur, Bókasalaverðlaunin og Dimmalimm – íslensku myndskreytiverðlaunin. Auk þess hefur hún hlotið fjölda tilnefninga, m.a. til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, Norrænu barnabókaverðlaunanna, Bókmenntaverðlauna Reykjavíkurborgar og Fjöruverðlaunanna, svo eitthvað sé nefnt.
Í tilefni af Barnamenningarhátíð í Reykjavík hefur Áslaug, í samstarfi við Gallerí Fold, útbúið prent af vel völdum myndum úr Skrímslabókunum vinsælu um litla skrímslið, stóra skrímslið og loðna skrímslið. Í bókunum takast skrímslin þrjú á við lífið á einstaklega fallegan hátt, það skiptast á skin og skúrir eins og hjá okkur öllum en sigrarnir eru eftirminnilegir – oft stórkostlegir, og lærdómurinn sem lesandinn getur tekið með sér mikill. Fyrsta bókin Nei! sagði litla skrímslið kom út árið 2004 og sú nýjasta Skrímslaveisla tuttugu árum síðar árið 2024. Fyrir bókina Skrímsli í vanda hlaut Áslaug og meðhöfundar hennar, Rakel Helmstad og Kalle Güettler, Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2017 í flokki barna- og ungmennabóka.
Á meðan á Barnamenningarhátíð stendur verður sýningin sniðin að börnum. Myndirnar hanga í þeirra hæð, hægt verður að setjast í kósíhorn og sökkva sér í lestur Skrímslabókanna, eða spreyta sig á að teikna sitt eigið skrímsli, meðan skrímslin fylgjast með af veggjunum allt um kring.
Skímslin verða sannarlega í boði, þar sem hægt verður að kaupa bæði skrímslamyndir og skrímslabækur á sýningunni. Prentin eru gefin út í takmörkuðu upplagi og árituð af höfundinum.
Sýningin stendur til 26. apríl 2025
Opið er í Gallerí Fold virka daga 12-18
laugardaga 12-16
laugardaga 12-16