TIL HAMINGJU MEÐ KVENRÉTTINDAGINN!
Í dag fagna íslenskar konur kvenréttindadeginum og halda upp á að fyrir 110 árum fengu (sumar) íslenskar konur kosningarétt.
Við óskum konum til hamingju með þennan áfanga um leið og við tilkynnum að vefurinn okkar er farinn í sumarfrí og færslur verða stopular á næstu vikum.
Njótið sumarsins við lestur góðra bóka, af nógu er að taka í nýjum íslenskum bókum og þýðingum. Við mælum til dæmis með þessum nýlegu bókum:
Með minnið á heilanum. Frásagnir úr fjarlægum bernskuheimi eftir Þórhildi Ólafsdóttur
Áður en ég brjálast. Játningar af miðjunni eftir Soffíu Bjarnadóttur
Dúkkuverksmiðjan eftir Júlíu Margréti Einarsdóttur
Hefnd Diddu Morteins eftir Sigríði Pétursdóttur
Morð og messufall eftir Arndísi Þórarinsdóttur og Huldu Sigrúnu Bjarnadóttur
Ariel eftir Sylviu Plath í þýðingu Móheiðar Hlífar Geirlaugsdóttur
Ljóðasafn Guðrúnar Hannesdóttur
Njótið sumarsins!