HINSEGIN DAGA LAG
Það er um að gera að hita sig upp fyrir gleðina á morgun. Hér má nálgast þau lög sem samin hafa verið sérstaklega í tengslum við hátíðahöld Hinsegin daga í Reykjavík.
Una Torfadóttir flytur framlag ársins 2023. Hún samdi textann og lagið gerði hún í samvinnu við Hafstein Þráinsson. Hér má hlýða á Unu Torfadóttur flytja lagið. Lesa má textann hér:
Þú ert stormur
Ef ég dett
viltu lyfta mér upp?
Viltu leiða mig
í gegnum þetta allt?
Ég vil hlaupa hratt og vil ekki gera það ein.
Ég vil ekki vera ein.
Viltu öskra með mér út í myrkrið?
Viltu dansa hér langt fram á nótt?
Grenja svo úr hlátri,
enginn skilur neitt.
Viltu svara mér þegar ég hringi?
Viltu hlusta á mig tala í hringi svo lengi
að við sofnum
og leysum ekki neitt?
Því ég þarf ekki svör.
Ég þarf engin ráð.
Ég vil bara að við
getum verið við sjálf.
Ef ég dett
viltu lyfta mér upp?
Viltu leiða mig
í gegnum þetta allt?
Ég vil hlaupa hratt og vil ekki gera það ein.
Ég vil ekki vera ein.
Komdu og sýndu þeim allt sem þú getur.
Taktu endalaust pláss, þú ert stormur,
vindur sem að þýtur
um loftin eins og fugl.
Ég skal svara þér þegar þú hringir.
Ég skal hlusta á þig tala í hringi svo lengi
að þú sofnar,
ég skelli aldrеi á.
Því þú þarft ekki svör og þú þarft engin ráð.
Þú þarft byr undir báða vængi.
Þú þarft ljós, þú þarft pláss.
Stattu upp, hafðu hátt.
Þú ert frjáls.
Ef ég dеtt
viltu lyfta mér upp?
Viltu leiða mig
í gegnum þetta allt?
Ég vil hlaupa hratt og vil ekki gera það ein.
Ég vil ekki vera ein.
Hvað sem þeim finnst og þau segja
þarftu ekki að breyta neinu.
Finndu stoltið, vertu þú.
Það er enginn til sem veit allt betur.
Enginn annar sem að getur
fundið þig og hleypt þér út.
Ef þú vilt
skal ég lyfta þér upp.
Ég skal leiða þig
í gegnum þetta allt.
Fljúgum hátt og hratt.
Við þurfum ekki að vera ein.
Myndin er fengin af vefsíðu The Reykjavík Grapevine.