BEÐMÁL Í BORGINNI OG ALDAMÓTADÆTUR
Á RÚV má nú hlýða á aldamótaþættina Beðmál í borginni eða Sex and the City. Þættirnir hófu göngu sína í Bandaríkjunum árið 1998 og voru teknir til sýninga á RÚV árið 2000. Spaugilegar kynlífssenur, vinátta kvenna, fallegir skór og margt fleira verður krufið í þáttunum undir stjórn æskuvinkvennanna Nönnu Hlínar Halldórsdóttur og Sunnu Kristínar Hilmarsdóttur en framleiðslu sinnti Gígja Hólmgeirsdóttir.
Þættirnir mörkuðu ákveðin tímamót í poppmenningu vegna þess hvernig þeir fjölluðu um kynlíf kvenna. Í fyrsta þættinum fjölluðu þær Sunna Kristín og Nanna Hlín ásamt viðmælendum sínum um kynlífið í þáttunum. Kómískar kynlífssenur, hvað virkar í kynlífi og hvað ekki? Og er hægt að ræða það allt við vinkonur sínar? Viðmælendur eru: Alda Björk Valdimarsdóttir, Ásta Kristín Björnsson, Birna Ósk Harðardóttir, Hafdís Erla Hafsteinsdóttir, Helgi Ómarsson, Hildur Kristín Þorbjörnsdóttir og Lilja Reykdal Snorradóttir.
Beðmál í borginni og aldamótadætur verða á dagskrá RÚV á sunnudagsmorgnum. Fyrsti þátturinn fór í loftið fyrir rúmri viku síðan og sá næsti í morgun en þættirnir verða samtals fjórir. Þættina má nálgast í Sarpinum.