ÞÓRDÍS DRÖFN HLÝTUR BÓKMENNTAVERÐLAUN TÓMASAR GUÐMUNDSSONAR
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar koma að þessu sinni í hlut Þórdísar Drafnar Andrésdóttur. Verðlaunin eru veitt fyrir ljóðahandritið Síðasta sumar lífsins en þetta er fyrsta verk Þórdísar Drafnar og sér bókaforlagið Benedikt um útgáfu.Í dómnefnd sátu Þorvaldur Sigurbjörn Helgason formaður, Soffía Bjarnadóttir og Brynhildur Björnsdóttir og er umsögn þeirra eftirfarandi:
Sigurhandrit Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar 2025, Síðasta sumar lífsins, er ljóðsaga sem segir frá tveimur elskendum sem eru staddir á ónefndri sólríkri eyju. Handritið er ljúfsár og tregafull lýsing á endalokum í víðum skilningi; endalokum tímans, ástarinnar, lífsins og sumarsins sem hverfur frá birtu yfir í óvissu myrkurs. Hvorki elskendurnir tveir né eyjan sem þeir dvelja á eru nokkru sinni nefnd á nafn svo reynsluheimurinn sem ljóðin lýsa verður almennur á meðan ljóðmyndirnar eru bæði sértækar og óvenjulegar, allt frá þekktu minni þar sem fiskur verður táknmynd Guðs, yfir til kirsuberjasteina í öskubakka.
Umfjöllunarefni ljóðanna í Síðasta sumar lífsins eru þau sömu og skáld hafa fengist við frá örófi alda; ástin, dauðinn, náttúran, svo eitthvað sé nefnt, en höfundur tekst á við þessi þemu af tilfinningalegri dýpt, næmni og frumleika. Um ljóðin blása tregafullir vindar sem vekja upp hugrenningatengsl við nostalgíu, endalok ástar og þá sorg sem fylgir því að fullorðnast og skilja við heim bernskunnar. Einnig finnur lesandinn fyrir mýkt og fegurð í hinu smáa sem opnar á stærri spurningar um tímann sem bæði sleikir og sýkir sárin, eins og segir í textanum. Þótt söguheimur verksins sé afmarkaður þá vísa ljóðin út fyrir sig í átt að stærri veruleika með tilvísunum í náttúruhamfarir, átök og loftslagsbreytingar. Þrátt fyrir að frásögn verksins sé ívið kyrrlát þá liggur í gegnum ljóðin undiralda sorgar og við sjóndeildarhringinn vofir óútskýrð hætta sem ógnar hinu eilífa sumri eyjunnar. Þannig verður verkið að eins konar myndlíkingu fyrir líf nútímamannsins á Vesturlöndum, líf sem þrátt fyrir að hafa aldrei verið þægilegra og friðsælla er á sama tíma markerað af djúpstæðum ótta og óveðursskýjum sem hrannast upp á himni. „Heima er hvar sem er“, segir í ljóðtextanum og hér hvílir söknuður eftir því sem er að líða, ekki því sem var, heldur því sem er að renna okkur úr greipum hér og nú og spurningar vakna um það hvað og hvar er heima. Síðasta sumar lífsins er þannig eins og friðsæl og ljúfsár landslagsmynd af logninu á undan storminum, rétt áður en allt breytist fyrir fullt og allt.
Skáld.is óskar Þórdísi Dröfn innilega til hamingju með verðlaunin!