SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir28. nóvember 2025

ÚTGÁFUHÓF: GLÆÐUR GALDRABÁLS - SANNSAGA FRÁ 17. ÖLD

Útgáfu bókar Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur, Glæður galdrabáls verður fagnað í Gunnarshúsi, Dyngjuvegi 8, Reykjavík á morgun, laugardag, 29. nóv. kl 15-17.

Ólína kynnir bók sína og áritar. Í boði eru léttar veitingar og öll velkomin.

Um efni bókar segir svo:

Glæður galdrabáls fjallar um tíma galdraótta og ofstækis. Hér er rakin saga móður og sonar sem lögðu fótgangandi í langa ferð norðan úr landi vestur á firði í leit að betri kjörum, á síðari hluta 17. aldar, þegar tíðkaðist að brenna fólk á báli fyrir galdra. Orðrómur einn gat leitt til galdraákæru sem kostaði lífið og vitnisburður sveitunga réði úrslitum um líf eða dauða. Í Selárdal í Arnarfirði mætti þeim mæðginum samfélag gegnsýrt af galdraofstæki sem hafði afdrifaríkar afleiðingar fyrir þau bæði. Sagan er sögð eftir bestu fáanlegu heimildum, en skáldað í eyður þar sem vitneskju skortir, og ofin saman við sagnfræðilegar staðreyndir um atburði og tíðaranda brennualdar. Hér er fjallað um sögulega atburði og mannleg örlög af sagnfræðilegu og skáldlegu innsæi.