SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir 4. mars 2026

VALGERÐUR HLÝTUR VIÐURKENNINGU HAGÞENKIS

Í dag var tilkynnt að Viðurkenningu Hagþenkis í ár hlýtur Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir fyrir bókina Meyjar og völd. Rímur og saga af Mábil sterku. Bókin er gefin út af Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og ritstjóri var Haukur Þorgeirsson.

Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni í dag. Valgerður segir að rímurnar af Mábil sterku opni glugga til fortíðar sem séu ekki svo ólíkir nútímanum.

„Þær segja sögu af kynjamisrétti, græðgi og siðleysi og líklega eru þær ortar sem níð um einhverja konu eða konur en á nútímamáli heitir það einelti.“

Við óskum Valgerði hjartanlega til hamingju með viðurkenninguna.

 

Tengt efni