SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir21. mars 2026

SKRIFAR BÓK UM SORG EFTIR AÐ HAFA MYRT EIGINMANNINN

Kona nokkur í Utah, að nafni Kouri Richins, sendi frá sér barnabókin Are You With Me? í mars árið 2023.

Í kynningu bókar kemur fram að hún sé skrifuð af ástríkri móður til barna sinna sem misst hafa föður sinn. Sagan er hugsuð til þess að veita föðurlausum börnunum styrk í sorginni en Kouri hafði sjálf misst eiginmann sinn og föður þriggja barna þeirra hjóna árinu áður. 

Það leið ekki á löngu þar til Kouri var handtekin fyrir morðið á eiginmanni sínum og hefur nú fallið dómur í málinu. Kouri reyndist hafa eitrað fyrir honum með því að blanda fimmföldum skammti af fentanyl í kokteil sem hún færði honum. Ástæðan er sögð sú að hún var skuldum vafinn og vonaðist eftir að erfa eiginmanninn að honum látnum, auk þess sem hún var í tygjum við annan mann. Kouri vildi sem sagt skilja við eiginmanninn en ekki peningana hans. 

Kouri var einnig sakfelld fyrir önnur alvarleg brot, t.d. hafði hún reynt að fyrirkoma eiginmanninum fáeinum vikum áður, með því að færa honum samloku með fentanýli á Valentínusardeginum sem olli því að hann missti meðvitund. 

Kouri (35 ára) hlaut lífstíðardóm í fangelsi. Af barnabókinni er það að frétta að hún hefur ekki hlotið ýkja góða dóma og sérstaklega ekki eftir að grunur beindist að Kouri. Á Goodreads hlýtur hún 1,70 stjörnu af sex mögulegum. Vissulega hefur ódæði höfundar nokkur áhrif þar á. Þá vaknar þessi stóra og siðferðilega spurning hvort hægt sé að leggja höfundinn til hliðar og njóta verksins á þess eigin forsendum eingöngu, líkt og Mary Beth kýs að gera líkt og sjá má hér fyrir neðan?