Árstíðarverur
Í dag var tilkynnt hvaða bækur fengu tilnefningar til barna og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.
Þrettán bækur eru tilnefndar og þar á meðal myndabækur, skáldsögur og teiknimyndabækur. Tvær af þessum bókum eru íslenskar.
Önnur bókin er Árstíðarverur eftir Diljá Hvannberg Gagu rithöfund og Linn Janssen myndhöfund. Hin bókin er eftir Ævar Þór Benendiktsson og Elínu Elísabetu Einardóttur.
Í umsögn dómnefndar segir að Árstíðarverur sé einstaklega vel heppnuð mynrdík barnabók sem sameinar fræðslu, sköpunargleði og hjartahlýju. Í frumlegri og aðgengilegri frásögn sé veðurfari og árstíðum á Íslandi gefið sviðið. Bókin er ekki aðeins fræðandi heldur einnig hlý og mannleg. Þá endurspegli hún reynslu kynslóða sem alist hafa upp við síbreytilega íslenska veðráttur og vekur bæði bros og samkennd.
- Höfundar: Textinn er eftir Diljá Hvannberg Gagu og myndskreytingar eru eftir Linn Janssen.
- Söguþráður: Sagan segir frá Bjarna og bekkjarfélögum hans sem eru að læra um árstíðirnar. Bjarni verður hissa þegar hann vaknar einn vormorgun og allt er á kafi í snjó, sem leiðir hann inn í heim árstíðarveranna.
- Þema: Bókin er tileinkuð börnum sem alast upp við hina breytilegu íslensku veðráttu og útskýrir fyrirbæri eins og hvers vegna það snjóar á vorin eða af hverju sólin skín á veturna í gegnum skemmtilegar verur.